bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 15
Jeremiah 15
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 16 →
1
Drottinn sagði við mig: Þó að Móse og Samúel stæðu fyrir augliti mínu vildi ég ekki skipta mér af þessu fólki. Rektu þá frá augliti mínu, þeir eiga að fara burt.
2
Ef þeir þá spyrja: Hvert eigum vér að fara? skaltu svara þeim: Svo segir Drottinn: Til dauða sá sem dauða er ætlaður, til sverðs sá sem sverði er ætlaður, til hungurs sá sem hungri er ætlaður, til útlegðar sá sem útlegð er ætlaður.
3
Ég sendi ferns konar refsingu yfir þá, segir Drottinn: sverð til að drepa þá, hunda til að draga þá burtu, fugla himinsins og dýr merkurinnar til að éta þá upp og eyða þeim.
4
Ég læt öll konungsríki jarðar hrylla við þeim vegna þess sem Manasse Hiskíason Júdakonungur gerði í Jerúsalem.
5
Hver vorkennir þér, Jerúsalem, hver hefur samúð með þér? Hver staldrar við til að spyrja um líðan þína?
6
Þú hafnaðir mér, segir Drottinn, þú snerir baki við mér, þess vegna reiddi ég hönd mína gegn þér. Ég er þreyttur á að sýna miskunn.
7
Ég sáldraði þeim með varpskóflu í borgum landsins, gerði þjóð mína barnlausa, eyddi henni þar sem hún breytti ekki háttum sínum.
8
Ekkjur þessarar þjóðar urðu fleiri en sandkorn á sjávarströnd, um hádegisbil sendi ég eyðanda gegn mæðrum unglinganna, lét ógn og skelfingu steypast yfir þær óviðbúið.
9
Sjö barna móðir féll í öngvit, líf hennar fjaraði út. Sól hennar gekk til viðar um hábjartan dag, hún var höfð að háði og spotti. Þá sem eftir voru ofurseldi ég sverðinu frammi fyrir fjandmönnum þeirra, segir Drottinn.
10
Vei mér, móðir, að þú fæddir mig, mann sem á í málaferlum og deilum við alla landsmenn. Ég hef engum lánað og enginn hefur lánað mér, samt formæla mér allir.
11
Sannarlega hef ég þjónað þér, Drottinn, með gott í huga, ég hef beðið fyrir fjandmanni mínum þegar hann hefur þolað böl og neyð.
12
Verður járn mölbrotið, járn að norðan, og eir?
13
Ég framsel auð þinn og fjársjóði sem herfang, það er endurgjald fyrir allar syndir þínar sem þú hefur drýgt um allt land þitt.
14
Ég geri þig að þræli fjandmanna þinna, í landi sem þú þekkir ekki, því að reiði mín hefur blossað upp, hún brennur gegn yður.
15
Þú veist það, Drottinn, minnstu mín og taktu mig að þér. Hefndu mín á þeim sem ofsækja mig. Sviptu mér ekki í burtu vegna langlundargeðs þíns, játaðu að ég þoli smán þín vegna.
16
Þegar orð þín komu gleypti ég þau, orð þín urðu gleði mín. Hjarta mitt fagnaði því að ég er kenndur við þig, Drottinn, Guð hersveitanna.
17
Ég sit ekki og gleðst í hópi þeirra sem fagna. Ég sit einn því að hönd þín hvílir þungt á mér og þú hefur fyllt mig reiði þinni.
18
Hvers vegna er þjáning mín ævarandi, sár mitt svo illkynjað að ekki verður grætt? Þú ert orðinn eins og vatnslaus farvegur, svikult vatnsból.
19
Þess vegna segir Drottinn: Viljir þú snúa við sný ég þér svo að þú getir aftur þjónað mér. Ef þú talar þungvæg orð en ekki léttvæg skaltu vera munnur minn. Þá leita menn til þín en þú mátt ekki leita til þeirra.
20
Ég geri þig að rammbyggðum eirvegg til að verjast þessu fólki. Þeir munu ráðast á þig en ekki sigra þig því að ég er með þér, ég hjálpa þér og frelsa þig, segir Drottinn.
21
Ég bjarga þér úr höndum vondra manna og frelsa þig úr greipum ofbeldismanna.
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 16 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52