bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Jeremiah 5
Jeremiah 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 6 →
1
Gangið um stræti Jerúsalem, litist um, spyrjist fyrir, leitið á torgunum hvort nokkur finnist, hvort þar sé aðeins einn sem stundar réttlæti og leitar sannleikans, og þá mun ég fyrirgefa borginni, segir Drottinn.
2
Þótt þeir segi: „Svo sannarlega sem Drottinn lifir,“ sverja þeir meinsæri.
3
Drottinn, leita augu þín ekki sannleikans? Þú slóst þá en þá sveið ekki undan, þú gerðir nærri út af við þá en þeir létu sér ekki segjast. Þeir þverskölluðust og vildu ekki snúa við.
4
Ég hugsaði: Þetta eru lítilmenni sem hegða sér heimskulega því að þau rata ekki veg Drottins, þekkja ekki kröfur Guðs síns.
5
Þá vil ég heldur fara til stórmennanna og tala við þau því að þau rata veg Drottins, þekkja kröfur Guðs síns. En þau höfðu öll sem eitt brotið af sér okið, slitið fjötrana.
6
Þess vegna drepur skógarljónið þau, sléttuúlfurinn eyðir þeim, pardusdýrið liggur í leyni við borgir þeirra, hver sem út úr þeim fer verður rifinn sundur því að afbrot þeirra eru mörg, svik þeirra mikil.
7
Hvers vegna ætti ég að fyrirgefa þér? Synir þínir hafa yfirgefið mig og svarið við þá sem ekki eru guðir. Ég mettaði þá en þeir hóruðust og gistu vændishús.
8
Þeir eru stríðaldir stóðhestar og hvía hver að annars konu.
9
Ætti ég ekki að refsa þeim fyrir það? segir Drottinn, ætti ég ekki að hefna mín á annarri eins þjóð og þessari?
10
Farið upp í víngarðana og rífið þá niður en gereyðið þeim ekki, rífið burtu teinungana því að þeir eru ekki eign Drottins.
11
Íbúar Ísraels og íbúar Júda hafa brugðist mér, segir Drottinn.
12
Þeir hafa afneitað Drottni og sagt: „Hann er ekkert. Engin ógæfa kemur yfir oss, vér munum hvorki sjá sverð né hungur.
13
Spámennirnir eru loftið tómt, orðið er ekki í munni þeirra, það kemur þeim í koll.“
14
Þess vegna segir Drottinn, Guð hersveitanna: Af því að þeir hafa talað geri ég orð mín að eldi í munni þér og þetta fólk að eldiviðnum sem hann gleypir.
15
Hyggið að, Ísraelsmenn. Ég leiði gegn yður þjóð úr fjarlægu landi, segir Drottinn. Sú þjóð er ósigrandi, þetta er eldforn þjóð. Tungu þessarar þjóðar kannt þú ekki og skilur ekki hvað hún segir.
16
Örvamælir hennar er sem opin gröf, allir eru þeir hetjur.
17
Þeir gleypa kornuppskeru þína og brauð, þeir gleypa syni þína og dætur, rífa í sig sauðfé þitt og naut, vínvið þinn og fíkjutré, þeir höggva niður með sverði hinar víggirtu borgir sem þú treystir á.
18
En á þeim dögum, segir Drottinn, mun ég ekki gereyða yður.
19
Ef menn spyrja: „Hvers vegna hefur Drottinn, Guð vor, gert oss allt þetta?“ skalt þú svara þeim: „Á sama hátt og þér yfirgáfuð mig og þjónuðuð framandi guðum í landi yðar verðið þér að þjóna útlendingum í landi sem ekki er yðar.“
20
Kunngjörið meðal Jakobs niðja, boðið í Júda og segið:
21
Hlýddu á, heimska og skilningslausa þjóð, sem hefur augu en sérð ekki, eyru en heyrir ekki:
22
Óttist þér mig eigi? segir Drottinn, skjálfið þér eigi fyrir augliti mínu? Ég setti hafinu skorður með fjörusandinum, varanleg mörk sem það fer eigi yfir. Þótt öldurnar æði fær það engu áorkað, þótt þær drynji kemst það eigi yfir þau.
23
Þessi þjóð er þverúðarfull og þrjósk í hjarta. Þeir hafa vikið af leið og horfið burt.
24
Þeir hugsuðu eigi með sér: „Óttumst Drottin, Guð vorn, sem gefur regn, haustregn og vorregn, á réttum tíma, tryggir oss ákveðna uppskerutíð.“
25
Afbrot yðar hafa fært þetta allt úr skorðum, syndir yðar hafa svipt yður blessuninni.
26
Illmenni er að finna meðal þjóðar minnar. Þau leynast eins og veiðimenn sem læðast, setja upp gildrur og veiða menn.
27
Eins og fuglabúr full af fuglum eru hús þeirra full af svikum. Þess vegna eru þau voldug og rík,
28
feit og sælleg. Þau styðja málstað illmenna, kveða eigi upp rétta dóma í þágu munaðarleysingja svo að þeim farnist vel og reka eigi réttar fátæklinga.
29
Ætti ég ekki að refsa þeim fyrir það? segir Drottinn, ætti ég ekki að hefna mín á annarri eins þjóð og þessari?
30
Óttalegt og hræðilegt er það sem við ber í landinu.
31
Spámennirnir boða lygi, prestarnir kenna að eigin geðþótta og þjóð minni fellur það vel. En hvað ætlið þér að gera þegar kemur að skuldadögunum?
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52