bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 12
Job 12
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 13 →
1
Job svaraði og sagði:
2
Sannarlega eruð þér vitrir og spekin deyr út með yður.
3
Ég hef líka vit eins og þér. Og hverjum er ekki kunnugt um það?
4
Ég varð að athlægi meðal vina minna, ég sem ákallaði Guð og var bænheyrður, réttlátur og flekklaus maður varð að athlægi.
5
Hinum óhulta finnst ógæfan fyrirlitleg en hún er vís þeim sem hrasar.
6
Tjöld ofbeldismanna eru látin óáreitt og þeir eru óhultir sem vekja reiði Guðs, sem telja sig hafa Guð í hendi sér.
7
Spyrðu skepnurnar svo að þær kenni þér, fugla himins og þeir munu skýra þér frá
8
eða dýr merkurinnar svo að þau kenni þér, og fiskar hafsins geta einnig sagt þér frá þessu.
9
Hvert þeirra skyldi ekki vita að hönd Drottins hefur gert þetta,
10
að lífskraftur alls sem lifir er í hendi hans og lífsandi allra dauðlegra manna?
11
Prófar eyrað ekki orðin og finnur gómurinn ekki bragð að matnum?
12
Er spekina að finna hjá öldungum og hyggindin hjá langlífum?
13
Hjá Guði er speki og kraftur, hjá honum er ráðsnilld og hyggindi.
14
Það sem hann rífur niður verður ekki endurreist, fyrir þeim sem hann læsir inni verður ekki upp lokið.
15
Stöðvi hann vatnsflauminn þornar hann, sleppi hann honum lausum eyðir hann landinu.
16
Hjá honum er máttur og viska, hans eru þeir sem villast og villa um.
17
Hann leiðir ráðgjafa berfætta á braut, gerir dómara að glópum,
18
leysir fjötra konunga og bindur reipi um lendar þeirra,
19
leiðir presta berfætta á braut og steypir fornum valdaættum.
20
Hann rænir mælskumenn málinu, sviptir öldunga dómgreind,
21
eys smán yfir tignarmenni og slakar á belti hinna stæltu.
22
Hann leiðir hið hulda fram úr myrkrinu og dregur dimmuna fram í birtuna.
23
Hann eflir þjóðir og tortímir þeim, breiðir þær út og upprætir þær,
24
sviptir höfðingja landsins viti, lætur þá ráfa um vegalausa auðn,
25
fálma í glórulausu myrkri, reikula í spori eins og drukkna menn.
← Chapter 11
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 13 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42