bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 36
Job 36
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 35
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 37 →
1
Elíhú tók enn til máls og sagði:
2
Andartak, ég ætla að segja þér dálítið, enn er margt ósagt um Guð.
3
Þekkingu mína ætla ég að draga langt að og sýna fram á réttlæti skapara míns.
4
Orð mín eru sannarlega engin lygi, hjá þér er sá sem býr yfir fullkominni þekkingu.
5
Guð er voldugur en fyrirlítur engan, hann er voldugur að mætti og speki.
6
Hann gefur ekki óguðlegum líf en lætur umkomulausa ná rétti sínum.
7
Hann hefur ekki augun af réttlátum en setur þá í hásæti með konungum, ævinlega, og þeir verða mikils metnir.
8
En hafi þeir verið lagðir í hlekki, reyrðir í reipi þjáningarinnar,
9
setur hann þeim verk þeirra fyrir sjónir og misgjörðir því að þeir hreyktu sér.
10
Hann opnar eyru þeirra og vandar um við þá, hvetur þá til að hverfa frá vonsku sinni.
11
Ef þeir hlýða og þjóna honum lýkur ævidögum þeirra í velsæld og árum þeirra í unaði.
12
En hlýði þeir ekki fara þeir yfir fljótið til undirheima og deyja í vanþekkingu.
13
Guðlausir í hjarta ala á heift, þeir hrópa ekki á hjálp þegar hann fjötrar þá.
14
Ævi þeirra lýkur í æskublóma og lífi þeirra lýkur meðal hórsveina.
15
Guð bjargar hinum þjáða með þjáningum hans, opnar eyra hans með áþján.
16
Þig dró hann einnig úr gini þjáninga, út á víðlendi þar sem engin þrenging er. Borð þitt er hlaðið feitmeti
17
en þú færð fylli þína af sama dómi og guðlausir, dómur og réttlæti halda þér í skefjum.
18
En gættu þín, láttu ekki ginnast af allsnægtum og ekki tælast af mútum.
19
Mun auður þinn leysa þig úr nauðum eða afl þitt reynt til fulls?
20
Þráðu ekki nóttina þegar þjóðir verða að halda frá byggðum sínum.
21
Gættu þín, snúðu þér ekki að illu því að þess vegna varstu reyndur með þjáningu.
22
Guð er upphafinn í mætti sínum, hver getur kennt eins og hann?
23
Hver getur vísað honum til vegar? Og hver getur sagt við hann: „Þú hefur breytt rangt.“
24
Mundu að tigna verk hans sem menn syngja lof.
25
Allir menn horfa fagnandi á það, hinn dauðlegi sér það úr fjarska.
26
Guð er meiri en vér getum skilið, óteljandi eru ár hans.
27
Hann safnar saman vatnsdropum, þeir hreinsast og verða regn
28
sem streymir úr skýjunum og fellur yfir mannfjöldann.
29
Hver skilur rek skýjanna og þrumugnýinn frá bústað hans?
30
Hann breiðir um sig birtu sína og hylur botn hafsins.
31
Því að þannig dæmir hann þjóðirnar, gefur þeim gnægð matar.
32
Leiftrandi elding hylur lófa hans og skipun hans beinir henni í mark.
33
Þruma hennar segir frá honum og búféð boðar komu hans.
← Chapter 35
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 37 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→