bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 39
Job 39
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 38
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 40 →
1
Veistu hvenær steingeitur bera, fylgistu með fæðingarhríðum hinda?
2
Telurðu mánuðina sem þær ganga með og veistu hvenær þær bera?
3
Þær hnipra sig saman, bera kálfum sínum og losna við hríðarnar.
4
Kálfarnir styrkjast og dafna í haganum, hlaupa burt og koma ekki aftur til þeirra.
5
Hver sleppti villiasnanum lausum og hver leysti fjötra sléttuasnans?
6
Ég gerði auðnina að heimkynnum hans og saltsléttuna að bústað hans.
7
Hann hlær að skarkala borgarinnar og heyrir ekki köll smalanna,
8
hann leitar haga í fjöllunum, sækir í allt grænt.
9
Vill villinautið þræla fyrir þig, stendur það næturlangt við jötu þína?
10
Geturðu bundið villinautið í plógfarinu með reipum, plægir það dalgrundirnar á eftir þér?
11
Treystirðu því af því að afl þess er mikið og lætur það erfiða fyrir þig?
12
Treystirðu því til að flytja korn þitt og safna því á þreskivöll þinn?
13
Vængjablak strútshænunnar er skoplegt, verður vængjum hennar líkt við flugfjaðrir storks og fálka?
14
Þegar hún skilur egg sín eftir á jörðinni svo að þau haldist heit í sandinum
15
gleymir hún að fótur getur kramið þau og villidýr troðið þau í sundur.
16
Hún beitir unga sína hörðu eins og hún ætti þá ekki. Þótt erfiði hennar sé til einskis stendur henni á sama
17
því að Guð synjaði henni um skynsemi og veitti henni enga hlutdeild í skilningi.
18
En þegar hún stekkur upp, baðar vængjum, hlær hún að hesti og riddara.
19
Gafstu hestinum afl, klæddirðu makka hans faxi,
20
læturðu hann stökkva eins og engisprettu? Tignarlegt hnegg hans er ógnvekjandi.
21
Hann krafsar upp grundina og gleðst, sterkur veður hann gegn vopnum,
22
hlær að hræðslu, óttast ekkert og hopar ekki fyrir sverði.
23
Á baki hans glamrar í örvamæli, spjót og bjúgsverð leiftra,
24
með hávaða og harki þýtur hann yfir landið, stansar ekki við hornaþyt.
25
Hann hneggjar þegar horn er þeytt, hefur veður af bardaga langt að, köllum liðsforingja og herópum.
26
Er það fyrir þína visku sem fálkinn flýgur upp og þenur vængina til suðurs?
27
Hefur örninn sig til flugs eftir þinni skipun og gerir sér hreiður hátt uppi?
28
Hann býr í björgum og náttar þar á klettagnípum og fjallatindum,
29
þaðan skyggnist hann eftir bráð, augu hans horfa langt í fjarska.
30
Unga hans þyrstir í blóð og þar sem fallnir liggja er hann kominn.
← Chapter 38
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 40 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42