bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 33
Job 33
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 34 →
1
Hlýddu nú á ræðu mína, Job, ljáðu orðum mínum eyra.
2
Ég hef lokið upp munni mínum, tungan talar í gómi mínum.
3
Ég tala af hjartans einlægni og það sem ég veit segi ég í hreinskilni.
4
Andi Guðs skapaði mig og lífsandi Hins almáttka gefur mér líf.
5
Svaraðu mér ef þú getur, gakktu fram og flyttu mál þitt.
6
Frammi fyrir Guði er ég eins og þú, ég var líka mótaður úr leir.
7
Ótti við mig þarf ekki að skelfa þig og þvingun frá mér ekki að þjaka þig.
8
En þú sagðir í eyru mín og ég heyrði hljóm orðanna:
9
„Ég er hreinn og syndlaus, flekklaus og án sektar.
10
Guð fann átyllu til að ásaka mig og telur mig óvin sinn,
11
hann setti fætur mína í gapastokk og fylgist með allri breytni minni.“
12
Í þessu efni hefurðu ekki rétt fyrir þér, svara ég, því að Guð er meiri en maður.
13
Hvers vegna hefurðu deilt við hann? Hann svarar orðum mannsins engu.
14
Guð getur talað á einn máta, jafnvel tvo, án þess að menn gefi því gaum.
15
Í draumi, í sýn um nótt, þegar menn sofa djúpum svefni í rúmum sínum,
16
opnar hann eyru manna og skelfir þá með viðvörun
17
til að hindra manninn í störfum sínum og forða honum frá hroka.
18
Hann bjargar lífi hans frá gröfinni, frá því að fara yfir fljótið til undirheima.
19
Einnig er maðurinn áminntur með kvölum í rúmi sínu og sífelldu stríði í beinum sínum.
20
Hann fær ógeð á mat, missir lystina á eftirlætisrétti sínum,
21
hold hans tærist og sést varla og holdlausir limir hans sjást ekki lengur.
22
Líf hans færist nær gröfinni, hann nálgast stað dauðra.
23
En sé engill hjá honum, talsmaður, einn af þúsund sem boða mönnunum hið rétta,
24
og miskunni sig yfir hann og segi: „Bjargaðu honum frá gröfinni, ég hef fundið lausnargjald,“
25
þá styrkist hold hans af æskuþrótti, hann snýr aftur til æskudaga sinna.
26
Hann biður til Guðs og hann miskunnar honum, fær að sjá auglit hans og fagnar og Guð gefur hinum dauðlega aftur réttlæti sitt.
27
Hann syngur fyrir menn og segir: „Ég syndgaði og beygði það sem var beint en hann galt ekki líku líkt,
28
hann leysti líf mitt frá gröfinni, ég lifi og sé ljósið.“
29
Allt þetta gerir Guð fyrir manninn, tvisvar eða þrisvar,
30
hann leiðir hann lifandi frá gröfinni svo að ljós lífsins lýsi honum.
31
Hlýddu á, Job, hlustaðu á mig, vertu nú hljóður svo að ég megi tala.
32
Hafirðu eitthvað að segja skaltu svara mér, talaðu því að ég vildi að þú hefðir á réttu að standa.
33
En hafirðu ekkert að segja skaltu hlusta á mig, vertu hljóður og ég skal kenna þér speki.
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 34 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42