bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 30
Job 30
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 31 →
1
En nú hlæja þeir að mér sem eru mér yngri að árum, mér þóttu feður þeirra ekki verðir þess að vera með fjárhundum mínum.
2
Að hvaða gagni kom mér kraftur þeirra? Þróttur þeirra var þorrinn,
3
örmagna af skorti og aðþrengdir af hungri nöguðu þeir skrælþurrt landið sem í gær var auðn og eyðimörk.
4
Þeir söfnuðu hrímblöðku við þyrnirunna og höfðu rætur til matar,
5
voru flæmdir úr samfélaginu og á eftir þeim var hrópað eins og þjófum.
6
Í hlíðum fjallanna hírast þeir í holum og hellum.
7
Þeir kveina milli runnanna, hópast saman undir þistlunum.
8
Þetta er ærulaust fólk, nafnlaust fólk, sem var hrakið út úr landinu.
9
En nú kveður það um mig níðvísur og fleiprar um mig.
10
Það hefur óbeit á mér, forðast mig, hikar ekki við að hrækja framan í mig.
11
Þar sem Guð losaði bogastreng minn og niðurlægði mig sleppti það fram af sér beislinu frammi fyrir mér.
12
Frá hægri reis skari gegn mér, kippti undan mér fótunum og lagði gegn mér óheillabrautir sínar.
13
Þeir rufu stíg minn, unnu að falli mínu og enginn aftraði þeim,
14
þeir komu eins og gegnum breitt múrskarð og byltust sem öldur innan um rústirnar.
15
Skelfingar hafa snúist gegn mér, virðingu minni var feykt burt eins og í stormi og gæfa mín hvarf eins og ský.
16
Nú fjarar líf mitt út, dagar eymdarinnar hremma mig,
17
um nætur nístast bein mín sundur, nagandi kvölunum linnir ekki.
18
Guð þreif í klæði mín af öllu afli, herti að mér eins og hálsmál kyrtils,
19
kastaði mér niður í eðjuna og ég varð eins og mold og aska.
20
Ég hrópa til þín en þú svarar ekki, ég stend kyrr en þú verður mín ekki var.
21
Þú ert orðinn grimmur við mig, ræðst gegn mér af alefli,
22
þú setur mig á bak vindinum og lætur hann bera mig burt.
23
Ég veit að þú sendir mig í dauðann, á ákvörðunarstað allra sem lifa.
24
En rétta menn ekki út höndina þegar allt hrynur, hrópa menn ekki á hjálp í neyð sinni?
25
Grét ég ekki yfir þeim sem áttu illa ævi, hafði ég ekki meðaumkun með fátæklingum?
26
Þegar ég bjóst við góðu kom illt, ég vænti ljóss en þá kom myrkur.
27
Innyfli mín ólga linnulaust, eymdardagar bíða mín.
28
Ég geng um svartur en þó ekki sviðinn af sól, ég rís á fætur í söfnuðinum og hrópa á hjálp.
29
Ég verð bróðir sjakala, félagi strútsins.
30
Hörund mitt er orðið svart og beinin glóandi af sótthita.
31
Hörpuleikur minn varð að sorgarljóði, flautuleikurinn harmakvein.
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 31 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→