bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 29
Job 29
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 28
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 30 →
1
Job hélt áfram ræðu sinni og sagði:
2
Ég vildi að ég væri eins og áður fyrr þegar Guð verndaði mig,
3
þegar hann lét lampa sinn lýsa yfir höfði mér og ég gekk við ljós hans í myrkri.
4
Eins og þegar ég var á besta aldri, þegar Guð skýldi tjaldi mínu
5
og Hinn almáttki var enn með mér og börnin mín voru í kringum mig,
6
þegar ég þvoði fætur mína í mjólk og ólífuolían streymdi til mín úr klettunum.
7
Þegar ég gekk um hlið mitt til borgarinnar og settist í sæti mitt á torginu
8
drógu æskumenn sig í hlé þegar þeir sáu mig og öldungar risu á fætur og stóðu kyrrir,
9
höfðingjar gættu tungu sinnar og lögðu hönd á munn sér,
10
tignarmenn lækkuðu róminn og tunga þeirra loddi við góminn.
11
Sá sem hlustaði á mig lofaði mig, hver sem sá mig hældi mér
12
því að ég bjargaði snauðum sem hrópaði á hjálp og munaðarlausum sem enginn liðsinnti.
13
Sá sem var hætt kominn blessaði mig og ég fyllti hjarta ekkjunnar fögnuði.
14
Ég klæddist réttlæti, ráðvendni mín fór mér vel eins og kápa og vefjarhöttur.
15
Ég varð blindum augu og lömuðum fætur.
16
Ég varð snauðum faðir, kannaði deilur mér óþekktra manna,
17
braut kjálka illmennis og reif bráðina úr tönnum þess.
18
Ég sagði: „Ég mun farast í hreiðri mínu og lifa lengi eins og fuglinn Fönix.
19
Rót mín nær til vatns og limið er döggvað um nætur.
20
Æran endurnýjast mér sífellt og boginn yngist í hendi mér.“
21
Menn hlustuðu á mig og biðu og hlýddu þegjandi á ráð mitt.
22
Þegar ég hafði talað tók enginn til máls, orð mín drupu á þá,
23
þeir biðu mín eins og regns, opnuðu munninn og vonuðust eftir vorskúr.
24
Brosti ég við þeim fengu þeir kjark, ef andlit mitt ljómaði voru þeir ekki lengur niðurlútir.
25
Ég ákvað þeim leið, sat í höfðingjasætinu, dvaldist sem konungur meðal hersveitanna, eins og sá sem huggar sorgmædda.
← Chapter 28
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 30 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→