bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 34
Job 34
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 33
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 35 →
1
Elíhú tók til máls og sagði:
2
Hlustið á orð mín, spekingar, hlýðið á mig, vitmenn.
3
Eyrað prófar orð og gómurinn bragðar mat
4
en vér skulum velja hið rétta, komast að raun um hvað gott er.
5
Job hefur sagt: „Ég hef rétt fyrir mér en Guð hefur svipt mig rétti mínum.
6
Þótt ég hafi á réttu að standa er ég talinn lygari, ör særði mig banvænu sári þó að ég hafi ekki brotið af mér.“
7
Hvaða maður líkist Job, sem svelgir í sig lastmæli eins og vatn,
8
leitar samfélags við illvirkja og umgengst guðleysingja?
9
Hann sagði jafnvel: „Það er engum ávinningur að vera í vinfengi við Guð.“
10
Hlustið því á mig, vitru menn. Fjarri fer því að Guð breyti ranglega og Hinn almáttki aðhafist illt,
11
heldur endurgeldur hann manninum verk hans og lætur hann gjalda breytni sinnar.
12
Nei, vissulega breytir Guð ekki ranglega og Hinn almáttki hallar ekki réttinum.
13
Hver trúði honum fyrir jörðinni og hver fékk honum heiminn í hendur?
14
Ef hann hugsaði aðeins um sjálfan sig, tæki aftur til sín anda sinn og lífskraft,
15
þá mundi allt sem lifir deyja og maðurinn hverfa aftur til moldarinnar.
16
Hlustaðu þá, hafir þú skilning, leggðu hlustir við því sem ég hef að segja.
17
Getur sá stjórnað sem hatar réttinn, getur þú sakfellt hinn réttláta og volduga,
18
þann sem segir við konung: „mannleysa,“ við höfðingjann: „óguðlegur,“
19
sem ekki dregur taum höfðingja og gerir ríkum ekki hærra undir höfði en fátækum því að allir eru þeir verk handa hans?
20
Þeir deyja skyndilega um miðja nótt, mönnum er brugðið og þeir hverfa á braut, voldugir víkja en ekki fyrir mannshendi.
21
Augu Guðs hvíla á vegferð mannsins, hann horfir á hvert hans spor,
22
ekkert það myrkur er til eða niðdimma þar sem illvirkinn geti falist.
23
Hann ákveður engum manni tíma til að koma fyrir dóm Guðs.
24
Hann molar hina voldugu án rannsóknar og setur aðra í þeirra stað.
25
Hann gjörþekkir verk þeirra, steypir þeim um nótt og þeir kremjast.
26
Hann hirtir þá fyrir illvirkin í augsýn allra
27
því að þeir viku frá honum og gáfu ekki gaum að vegum hans
28
svo að hróp nauðstaddra bárust til hans og hann heyrði kvein hinna snauðu.
29
En hafist hann ekki að, hver getur þá sakfellt hann og hver verður hans var byrgi hann auglit sitt? En hann vakir yfir þjóðum og mönnum
30
svo að enginn óguðlegur skuli drottna og verða þjóðinni snara.
31
En getur nokkur sagt við Guð: „Mér er refsað án þess að ég hafi breytt ranglega.
32
Þú skalt kenna mér það sem ég hef ekki séð, hafi ég gert rangt geri ég það ekki aftur.“
33
Á hann að endurgjalda eftir þínum geðþótta þar sem þú hefur hafnað úrskurði hans? Þú átt að velja, ekki ég, og segðu nú frá því sem þú veist.
34
Skynsamir menn munu segja við mig, vitrir menn sem hafa hlustað á mig:
35
„Job talaði ekki af þekkingu og ummæli hans eru ekki skynsamleg.“
36
En Job verður reyndur áfram því að hann hefur talað eins og vondur maður.
37
Hann bætir misgjörðum ofan á synd sína, lætur háðsyrði falla meðal vor og sýnir mótþróa.
← Chapter 33
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 35 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42