bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 37
Job 37
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 36
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 38 →
1
Þess vegna skelfur hjarta mitt og berst í brjósti mér.
2
Hlustið, heyrið þrumuraust hans, drununa úr munni hans.
3
Hann þeytir henni um himin allan og sendir leiftur sitt til endimarka jarðar.
4
Því næst drynur þruma, hann þrumar tignarlegri raust og heldur ekki aftur af eldingunum þegar rödd hans heyrist.
5
Með þrumuraust sinni gerir Guð kraftaverk og vinnur stórvirki sem vér skiljum ekki.
6
Hann segir við snjóinn: „Þú skalt falla á jörðina,“ og við regnið: „Þú skalt falla í stríðum straumum.“
7
Hann innsiglar hendur sérhvers manns svo að öllum sé ljóst að þetta eru verk hans.
8
Villidýr leita skjóls og bæla sig í holum sínum.
9
Stormurinn kemur úr forðabúrinu og kuldinn fylgir norðanvindinum.
10
Ísinn verður til fyrir andgust Guðs og hin víðu vötn leggur.
11
Skýin hleður hann vætu, dreifir bólstrum með eldingu sinni.
12
Skýin rekur í allar áttir, þau veltast um undir stjórn hans til að gera það sem hann skipar um alla hina byggðu jörð.
13
Hann beinir þeim ýmist sem refsivendi eða í þágu lands síns, eða til að auðsýna náð.
14
Hlýddu á þetta, Job, stattu nú kyrr og gefðu gaum að máttarverkum Guðs.
15
Skilurðu hvernig Guð gefur þeim fyrirmæli, hvernig elding leiftrar í skýjum hans,
16
skilurðu hvernig skýin svífa um, það er kraftaverk Hins alvitra,
17
þú sem stiknar af hita, alklæddur, í logni og breiskju á jörðinni?
18
Hleður þú með honum skýjabólstra sem eru fastmótaðir og líkjast steyptum spegli?
19
Segðu oss hvað vér eigum að segja við hann. Vegna myrkurs höfum vér ekkert fram að færa.
20
Þarf að segja honum að ég ætli að tala eða þarf einhver að skýra honum frá svo að hann fái fréttir?
21
Nú sjá menn ekki ljós ljóma á bak við ský en vindgustur blæs og sópar þeim burt.
22
Úr norðri kemur gullinn bjarmi, ógnvekjandi ljómi umhverfis Guð.
23
Vér náum ekki til Hins almáttka sem er upphafinn og mikill að mætti og réttlæti, réttlæti hans er mikið, hann kúgar engan,
24
þess vegna óttast menn hann, hann lítur ekki við þeim sem hafa viturt hjarta.
← Chapter 36
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 38 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→