bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 40
Job 40
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 39
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 41 →
1
Drottinn mælti til Jobs og sagði:
2
Ætlar ámælismaðurinn að deila við Hinn almáttka? Sá sem ásakar Guð svari þessu.
3
Job svaraði Drottni og sagði:
4
Nei, ég er léttvægur, hverju get ég svarað þér? Ég legg hönd mér á munn.
5
Einu sinni hef ég talað og svara ekki, tvisvar og endurtek það ekki.
6
Drottinn svaraði Job úr storminum og sagði:
7
Gyrtu nú lendar þínar eins og maður. Nú ætla ég að spyrja þig, þú skalt svara mér.
8
Ætlarðu að hafa dóm minn að engu, dæma mig sekan svo að þú verðir réttlættur?
9
Er armur þinn eins og armur Guðs, geturðu þrumað með sömu raust og hann?
10
Skrýddu þig nú hátign og mætti og klæðstu dýrð og ljóma,
11
helltu úr skálum reiði þinnar, líttu á hrokagikkinn og niðurlægðu hann,
12
líttu á hrokagikkinn og auðmýktu hann, traðkaðu óguðlega niður hvar sem þeir eru,
13
hyl þá mold, alla sem einn, lokaðu þá inni á leyndum stað
14
og ég skal lofa þig.
15
Líttu á flóðhestinn sem ég skapaði eins og þig, hann bítur gras eins og naut.
16
Sjáðu aflið í lendum hans og kraftinn í kviðvöðvum hans.
17
Hann sperrir halann eins og sedrustré, sinarnar í lærum hans eru samantvinnaðar,
18
beinin eru eirpípur, leggirnir járnstengur.
19
Hann er frumsköpun Guðs, skapari hans einn getur nálgast hann með sverði
20
en fjöllin færa honum afrakstur sinn og þar eru villtu dýrin að leik.
21
Hann liggur undir lótusrunnum, falinn í sefi og mýrarkeldum,
22
lótusrunnar hylja hann skugga, pílviðir á árbakka umlykja hann.
23
Hann hrökklast ekki burt þótt fljótið vaxi, hann er óhultur þegar Jórdan flæðir í gin hans.
24
Hver getur blindað hann og fangað, sett króka í nasir hans?
25
Geturðu veitt krókódílinn á öngul, þrýst niður tungu hans með færi,
26
dregið sefreipi gegnum nasir hans og stungið krók gegnum kjálka hans?
27
Sárbænir hann þig um miskunn eða talar hann vinsamlega til þín?
28
Gerir hann samning við þig um að þú gerir hann að þræli þínum ævinlega?
29
Leikurðu við hann eins og smáfugl, bindur hann fastan handa stúlkubörnum þínum?
30
Þjarka stórkaupmenn um hann og skipta honum meðal smásala?
31
Geturðu þakið húð hans skutlum, haus hans kastspjótum?
32
Leggðu lófa þinn á hann, settu þér bardagann fyrir sjónir, þú gerir það ekki aftur.
← Chapter 39
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 41 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→