bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 38
Job 38
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 39 →
1
Þá svaraði Drottinn Job úr storminum og sagði:
2
Hver er sá sem hylur ráðsályktunina myrkri með innihaldslausum orðavaðli?
3
Gyrtu lendar þínar eins og manni sæmir, nú ætla ég að spyrja þig en þú skalt svara.
4
Hvar varstu þegar ég grundvallaði jörðina? Segðu það ef þú veist það og skilur.
5
Hver ákvað umfang hennar, veist þú það, eða hver þandi mælivað yfir henni?
6
Á hvað var sökklum hennar sökkt eða hver lagði hornstein hennar
7
þegar morgunstjörnurnar sungu saman gleðisöng og allir synir Guðs fögnuðu?
8
Hver byrgði hafið inni með hliðum þegar það braust fram úr móðurlífi
9
og ég fékk því klæðnað úr skýjum og reifaði það svartaþoku,
10
þegar ég ruddi því markaða braut, setti slagbranda fyrir og hlið
11
og sagði: „Hingað kemstu og ekki lengra, hér stöðvast hreyknar hrannir þínar.“
12
Hvenær hefur þú kallað á morguninn, vísað aftureldingunni á sinn stað
13
svo að hún grípi í klæðafald jarðar og óguðlegir hristist af henni?
14
Hún breytist eins og leir undir innsigli og litast líkt og klæði.
15
Óguðlegir verða sviptir ljósi sínu og upplyftur armur þeirra brotinn.
16
Hefurðu komið að uppsprettum hafsins, gengið á botni frumdjúpsins?
17
Hafa hlið dauðans opinberast þér, hefurðu litið hlið myrkursins?
18
Hefurðu horft yfir víðáttur jarðar? Segðu frá þeim ef þú þekkir þær allar.
19
Hvar er leiðin til heimkynna ljóssins og hvar er bústaður myrkursins
20
svo að þú getir komið því á sinn stað og vísað því veginn heim?
21
Þetta veistu því að þá varstu fæddur og ævidagar þínir eru margir.
22
Hefurðu komið að forðabúri snævarins og séð geymslur haglsins
23
sem ég geymi til þrengingatíma, til orrustu- og ófriðardags?
24
Hvar er vegurinn þangað sem ljósinu er dreift og austanvindurinn tvístrast um jörðina?
25
Hver gerði göng fyrir regnskúrina og veg fyrir eldingarnar
26
svo að rignir yfir óbyggt land, yfir eyðimörkina þar sem enginn býr,
27
og mettar auðn og eyðilönd og lætur grængresi spretta?
28
Á regnið sér föður eða hver hefur getið daggardropana
29
og hver fæddi hrímið sem kemur af himni?
30
Vatnið stirðnar sem steinn og yfirborð djúpsins þéttist.
31
Hnýtir þú strengi Sjöstjörnunnar eða leysir þú fjötra Óríons?
32
Lætur þú stjörnumerkin koma í ljós á réttum tíma, leiðir fram ljónynjuna og hvolpa hennar?
33
Þekkir þú lög himinsins, ákveður þú vald hans á jörðinni?
34
Hefur þú rödd þína upp til skýja svo að vatnsflaumur hylji þig?
35
Sendirðu eldingar frá þér svo að þær þjóta af stað og segja við þig: „Hér erum vér“?
36
Hver veitti íbisfuglinum speki, hver gaf hananum skilning?
37
Hver telur skýin af þekkingu og hver hellir úr vatnskerum himins
38
þegar moldin verður að kekkjum og hnausarnir loða saman?
39
Veiðir þú bráð handa ljónynjunni? Seður þú hungur ljónshvolpanna
40
þegar þeir kúra í bæli sínu og liggja í leyni í runnanum?
41
Hver færir hrafninum bráð þegar ungar hans hrópa til Guðs, flögra fram og aftur án ætis?
← Chapter 37
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 39 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42