bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 22
Job 22
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 23 →
1
Elífas frá Teman svaraði og sagði:
2
Vinnur maðurinn Guði gagn? Nei, vitur maður vinnur sjálfum sér gagn.
3
Gleðst Hinn almáttki yfir réttlæti þínu? Er honum ávinningur að lýtalausri breytni þinni?
4
Ávítar hann þig fyrir guðsótta þinn og dregur þig fyrir dóm?
5
Er illska þín ekki mikil, eru afbrot þín ekki óþrjótandi?
6
Þú veðsetur landa þína að ástæðulausu, afklæðir fólk og skilur eftir nakið.
7
Örþyrstum gafstu ekki vatn að drekka, synjaðir hungruðum brauðs.
8
Sterkur maður á landið og í því býr mikils virtur maður.
9
Þú sendir ekkjur frá þér tómhentar og braust niður mátt munaðarleysingja,
10
þess vegna ertu umkringdur snörum og óvænt skelfing hræðir þig,
11
myrkur byrgir þér sýn og vatnsflaumur færir þig í kaf.
12
Er Guð ekki himinhár? Sjá, hve fjarlægustu stjörnur eru hátt uppi.
13
En þú spyrð: „Hvað veit Guð, getur hann dæmt það sem er handan við skýsortann?
14
Ský hylja hann svo að hann sér ekkert, hann gengur á himinhvelfingunni.“
15
Ætlar þú að feta hinn forna stíg sem illmenni tróðu?
16
Þeim var kippt burt fyrir aldur fram, grundvöllur þeirra skolaðist burt.
17
Þau sögðu við Guð: „Farðu frá oss,“ og: „Hvað getur Hinn almáttki gert oss?“
18
Samt fyllti hann hús þeirra gæðum en fyrirætlanir óguðlegra eru fjarri mér.
19
Réttlátir sáu þetta og glöddust, saklausir hæddu þá:
20
„Andstæðingum vorum var tortímt og eldur gleypti þá sem eftir voru.“
21
Náðu sáttum við Guð og lifðu í friði. Þá hlýturðu velgengni.
22
Þiggðu ráð úr munni hans, leggðu þér orð hans á hjarta.
23
Snúirðu þér til Hins almáttka og auðmýkir þig, haldir rangindum frá tjaldi þínu,
24
varpir skíragulli í duftið og Ófírgulli í lækjarmölina,
25
verður Hinn almáttki þér skíragull og skínandi silfur,
26
þá muntu gleðjast yfir Hinum almáttka og hefja auglit þitt til Guðs.
27
Biðjir þú til hans bænheyrir hann þig og þú munt standa við heit þín.
28
Áform þín munu heppnast og birta ljóma á vegum þínum.
29
Þú kallar niðurlægða hrokagikki en Guð hjálpar auðmjúkum.
30
Hann bjargar saklausum, vegna hreinna handa þinna bjargast hann.
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 23 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→