bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 15
Job 15
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 16 →
1
Elífas frá Teman svaraði og sagði:
2
Svarar vitur maður innantómum orðum og fyllir brjóst sitt austanvindi
3
til þess að verja málstað sinn með orðagjálfri?
4
Þú brýtur jafnvel guðsóttann niður, gerir lítið úr íhugun frammi fyrir augliti Guðs.
5
Já, sekt þín leggur þér orð í munn og þú velur þér tungutak lævísra.
6
Munnur þinn dæmir þig sekan en ekki ég og varir þínar vitna gegn þér.
7
Fæddist þú fyrstur manna, komstu í heiminn á undan hæðunum?
8
Varstu áheyrandi í ráði Guðs og aflaðir þér visku þar?
9
Hvað veist þú sem vér vitum ekki, hvað skilur þú sem oss er hulið?
10
Öldungar og gráhærðir menn eru á meðal vor, mun eldri en faðir þinn.
11
Nægir þér ekki huggun Guðs, mildilegt orð til þín talað?
12
Hví læturðu hjarta þitt hlaupa með þig í gönur og hvers vegna skjóta augu þín gneistum
13
er þú beinir heift þinni gegn Guði og lætur þvílík orð þér um munn fara?
14
Hvernig getur dauðlegur maður verið hreinn og sá haft rétt fyrir sér sem er af konu fæddur?
15
Hann getur ekki einu sinni treyst sínum heilögu og himinninn er ekki hreinn í augum hans,
16
hvað þá andstyggilegur og spilltur maður sem svelgir í sig ranglæti eins og vatn.
17
Nú ætla ég að kenna þér, hlustaðu á mig, ég ætla að segja frá því sem ég hef sjálfur séð
18
og vitrir menn hafa sagt og földu ekki fyrir feðrum sínum.
19
Þeim einum var landið gefið og enginn ókunnugur var á meðal þeirra.
20
Guðleysinginn kvelst alla ævidaga sína og ofbeldismaðurinn þau ár sem honum eru mæld,
21
skelfingaróp hljóma í eyrum hans, eyðandinn ræðst gegn honum á friðartímum.
22
Hann trúir því ekki að hann sleppi úr myrkrinu, sverðið bíður hans.
23
Hann eigrar um í leit að brauði: „Hvar er það?“ Hann veit að hans bíður dimmur dagur.
24
Þrenging og neyð skelfa hann, bera hann ofurliði eins og konungur búinn til atlögu
25
því að hann reiddi hönd sína gegn Guði, hreykti sér gegn Hinum almáttka,
26
hljóp hnakkakerrtur í móti honum búinn sterkum, hvelfdum skildi
27
því að hann safnaði spiki á andlit sitt og hlóð fitu á lendar sér.
28
Hann settist að í eyddum borgum, í húsum þar sem enginn skyldi búa og átti að leggja í rúst.
29
Hann auðgast ekki, auður hans varðveitist ekki og kornöx hans svigna ekki til jarðar.
30
Hann sleppur ekki úr myrkrinu. Græðlingar hans skrælna í glóandi hita og hann hverfur í vindinn.
31
Hann ætti ekki að reiða sig á hégóma, blekkja sjálfan sig, því að laun hans verða fánýti.
32
Áður en tími hans kemur skrælnar hann og greinar hans grænka ekki,
33
hann líkist vínviði sem missir grænjaxlana og ólífutré sem varpar frá sér blómum sínum.
34
Ófrjór er hópur guðlausra og eldur gleypir tjöld mútuþega,
35
þungaðir kvöl fæða þeir böl, kviður þeirra elur af sér blekkingu.
← Chapter 14
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 16 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42