bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 31
Job 31
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 32 →
1
Ég gerði þann sáttmála við augu mín að líta mey ekki girndarauga.
2
Hvaða hlutskipti kom að ofan, frá Guði, erfðahluti frá Hinum almáttka frá upphæðum?
3
Er það ekki glötun hins rangláta og ófarnaður illvirkja?
4
Sér hann ekki vegferð mína og telur hann ekki öll mín spor?
5
Hafi ég farið með tál og fótur minn hraðað sér til svika,
6
þá setji Guð mig á rétta vog og hann mun viðurkenna sakleysi mitt.
7
Hafi spor mín vikið af vegi, hjarta mitt hlýtt því sem augun sáu svo að hendur mínar flekkuðust,
8
þá neyti annar þess sem ég sáði til og það sem óx handa mér skal upprætt.
9
Hafi hjarta mitt látið tælast af annars manns konu og hafi ég legið á hleri við dyr náunga míns,
10
skal kona mín mala fyrir annan og aðrir menn leggjast með henni
11
því að það væri skömm og refsivert brot,
12
það væri eldur sem gleypti allt niður að rótum og upprætti allar eigur mínar.
13
Hafi ég vanvirt rétt þræls míns og ambáttar þegar þau deildu við mig,
14
hvað gæti ég þá gert ef Guð risi upp og yfirheyrði mig, hverju mundi ég svara?
15
Var það ekki skapari minn sem skapaði þrælinn í móðurlífi, var það ekki sá sami sem mótaði okkur í móðurkviði?
16
Hafi ég synjað bón þurfandi manns og gert augu ekkjunnar döpur,
17
hafi ég borðað bitann minn einn án þess að deila honum með munaðarleysingjanum,
18
nei, frá barnæsku hef ég verið honum sem faðir og stutt ekkjuna allt frá móðurlífi,
19
hafi ég séð klæðlausan mann að dauða kominn og snauðan mann án ábreiðu,
20
hafi lendar hans ekki blessað mig og ullin af lömbum mínum ekki haldið á honum hita,
21
hafi ég slegið hendi til munaðarleysingja þegar ég sá að ég hafði stuðning í borgarhliðinu,
22
þá losni herðablöð mín frá öxlunum og armur minn brotni í liðnum.
23
Já, tortíming frá Guði var skelfing og fyrir hátign hans megna ég ekkert.
24
Hafi ég sett von mína á gull og sagt að skíragull væri stoð mín,
25
hafi ég glaðst yfir miklum auði því að hönd mín aflaði mikils,
26
hafi ég litið skin sólarinnar og tunglið sem óð dýrlega áfram,
27
og hafi hjarta mitt látið tælast á laun og ég sent handkoss,
28
þá væri það refsivert brot af því að ég hefði afneitað Guði í upphæðum.
29
Hafi ég glaðst yfir óförum óvinar míns og hlakkað yfir böli hans,
30
leyfði ég munni mínum ekki að syndga með því að sækjast eftir lífi hans með formælingum.
31
Hafa íbúar tjalds míns ekki sagt: „Hver varð ekki saddur af kjöti hans?“
32
Enginn aðkomumaður þurfti að nátta utan dyra, ég lauk þeim upp fyrir vegfarendum.
33
Hafi ég dulið misgjörðir mínar eins og aðrir og falið sektina í brjósti mínu
34
þar sem ég óttaðist múginn og fyrirlitning ættanna skelfdi mig, þagði ég og fór ekki út fyrir dyr.
35
Ó, að einhver hlustaði á mig. Hér er undirskrift mín, Hinn almáttki svari mér. Hefði andstæðingur minn skrifað ákæru
36
setti ég hana á öxl mér og bæri hana eins og blómsveig.
37
Ég mundi gera honum grein fyrir hverju spori mínu og ganga fram fyrir hann sem höfðingi.
38
Hafi akurland mitt hrópað gegn mér og öll plógför þess grátið í einu,
39
hafi ég neytt uppskerunnar án endurgjalds og svipt réttan eiganda þess lífi,
40
skal það bera þyrna í stað hveitis, illgresi fyrir bygg.
← Chapter 30
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 32 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42