bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 41
Job 41
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 40
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 42 →
1
Nei, öll von manna bregst, það eitt að sjá hann leggur þá að velli.
2
Enginn dirfist að egna hann. Hver getur staðið fyrir augliti hans?
3
Hver ræðst gegn honum og sleppur heill frá því? Ekki nokkur, neins staðar undir himninum.
4
Ég ætla ekki að þegja um limi hans, afl hans og fagran vöxt.
5
Hver hefur svipt hann ytri klæðum sínum, brotist gegnum tvöfalda brynju hans?
6
Hver hefur opnað hliðin að gini hans? Tennur hans vekja skelfingu.
7
Hryggur hans er skjaldaröð, fest með innsigli úr kísilsteini,
8
hver skjöldur liggur að öðrum svo að loft kemst hvergi á milli,
9
einn er greyptur í þann næsta, þeir eru og verða ekki skildir að.
10
Hnerri hans kveikir eld og augu hans líkjast hvörmum morgunroðans.
11
Logar standa úr gini hans, neistar fljúga út úr honum,
12
úr nösum hans stendur eimur eins og úr glóheitum, sjóðandi potti.
13
Andgustur hans kyndir í kolum, úr gini hans stendur eldslogi.
14
Kraftur situr í hnakka hans og óttinn stekkur á undan honum.
15
Kviðvöðvar hans eru stinnir, steyptir á hann og hrærast ekki.
16
Hjarta hans er hart sem steinn, stöðugt eins og neðri kvarnarsteinn.
17
Þegar hann reisir sig skelfast jafnvel guðir og hörfa af ótta.
18
Sverð vinnur ekki á honum, né lensa, spjót eða ör.
19
Hann metur járn sem hálmstrá, eir eins og maðksmoginn við.
20
Örin rekur hann ekki á flótta, gegn honum verða slöngvusteinar að hálmi,
21
kylfan er honum strá, hann hlær að vopnabraki.
22
Kviður hans er alsettur hvössum broddum, hann myndar breið för í eðjuna eins og þreskisleði.
23
Hann lætur djúpið vella eins og ketil, hafið gerir hann að smyrslapotti,
24
rákin á eftir honum glitrar, hafdjúpið líkist silfurhærum.
25
Enginn er jafnoki hans á jörðu, hann var skapaður óttalaus.
26
Hann horfir á allt sem er hátt, er konungur allra stoltra dýra.
← Chapter 40
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 42 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→