bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 28
Job 28
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 29 →
1
Silfur er að finna í námum og gull á sér hreinsunarstað.
2
Járn er grafið úr jörðu og eir er bræddur úr grjóti.
3
Menn héldu myrkrinu í skefjum þegar þeir könnuðu grjót í dimmu og niðamyrkri.
4
Þeir grafa göng fjarri mannabyggð, gleymdir, án fótfestu, hanga þeir mönnum fjarri, sveiflast fram og aftur.
5
Úr jörðu kemur korn í brauð en iðrum hennar er umbylt eins og af eldi,
6
í grjóti hennar er safír að finna og í því eru gullkorn.
7
Veginn þangað þekkir ránfuglinn ekki og valsaugað hefur hann aldrei litið,
8
stolt rándýr feta hann ekki og ljónið gengur hann ekki.
9
Á tinnusteina leggur maðurinn hönd sína, umturnar fjöllunum frá rótum,
10
heggur göng gegnum björg og kemur auga á alls kyns gersemar.
11
Hann lokar seytlandi vatnsæðum og ber hið hulda út í birtuna.
12
En spekin, hvar er hana að finna og hvar á skilningurinn heima?
13
Enginn ratar til hennar, á landi lifenda er hana hvergi að finna.
14
Frumdjúpið segir: „Í mér er hún ekki,“ og hafið segir: „Ekki er hún hjá mér.“
15
Fyrir skíragull fæst hún ekki og silfur verður ekki fyrir hana vegið.
16
Ófírgull nær ekki andvirði hennar, ekki heldur dýrindis karneól eða safír.
17
Hvorki gull né gler jafnast á við hana, í skiptum fyrir gullker fæst hún ekki
18
svo að ekki sé minnst á kóral eða kristal. Að eiga spekina er dýrmætara en perlur.
19
Tópas frá Kús jafnast ekki á við hana og skírasta gull nægir ekki sem borgun.
20
Já, spekin, hvaðan kemur hún, hvar á skilningurinn heima?
21
Hún er hulin augum allra sem lifa, falin fuglum himinsins.
22
Undirheimar og dauði segja: „Aðeins orðspor hennar hefur borist oss til eyrna.“
23
Guð þekkir leiðina til hennar, veit hvar hana er að finna
24
því að hann sér til ystu marka jarðar, lítur allt undir himninum.
25
Þegar hann gaf vindinum styrk og ákvað umfang hafsins,
26
setti regninu reglur og markaði þrumuskýjunum braut,
27
þá sá hann spekina og sagði frá henni, rannsakaði hana og staðfesti.
28
En við manninn sagði hann: „Það er speki að óttast Drottin, viska að forðast illt.“
← Chapter 27
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 29 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→