bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 9
Job 9
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 10 →
1
Job svaraði og sagði:
2
Víst vissi ég að þessu er þannig farið því að hvernig getur maðurinn haft rétt fyrir sér gagnvart Guði?
3
Vilji hann deila við Guð getur hann ekki svarað einni spurningu af þúsund.
4
Guð er vitur í hjarta og mikill að mætti, hver hefur boðið honum birginn án þess að saka?
5
Hann flytur fjöll þeim að óvörum, hann umturnar þeim í reiði sinni,
6
hann hrærir jörðina úr stað svo að stoðir hennar nötra,
7
hann skipar sólinni fyrir og hún kemur ekki upp og hann innsiglar stjörnurnar,
8
hann einn þandi himininn út og gengur á ölduföldum hafsins,
9
hann skóp Karlsvagninn og Óríon, Sjöstjörnuna og stjörnumerkin í suðri.
10
Hann vinnur stórvirki sem ekki verða könnuð og kraftaverk sem ekki verða talin.
11
Gangi hann fram hjá mér sé ég hann ekki, fari hann hjá verð ég hans ekki var.
12
Hann hrifsar burt, hver hindrar hann? Hver getur spurt hann: „Hvað ertu að gera?“
13
Guð hemur ekki reiði sína, þeir sem hjálpuðu Rahab beygðu sig undir hann.
14
Hvernig á ég að geta svarað honum, valið orð mín gegn honum?
15
Þó að ég hefði rétt fyrir mér gæti ég ekki svarað og yrði að biðja dómara minn miskunnar.
16
Mundi hann svara mér ef ég hrópaði? Ég held að hann legði ekki hlustir við hrópi mínu,
17
hann sem feykir mér í storminum og fjölgar sárum mínum að ástæðulausu.
18
Hann lætur mig ekki ná andanum en mettar mig beiskju.
19
Sé um kraft að ræða, er mátturinn hans, sé um rétt að ræða, hver vill þá stefna honum?
20
Hefði ég rétt fyrir mér sakfelldi mig munnur minn, væri ég saklaus kæmi hann sektinni á mig.
21
Ég er saklaus og mér er sama um líf mitt, ég met það einskis.
22
Allt ber að sama brunni, því segi ég: Saklausum og óguðlegum tortímir hann.
23
Þegar svipan deyðir óvænt hæðir hann angist hinna saklausu.
24
Falli land guðlausum í greipar byrgir hann augu dómaranna. Ef ekki hann, hver þá?
25
Ævidagar mínir geysast áfram eins og hraðboði, þeir þjóta hjá án þess að líta heill,
26
renna áfram eins og reyrbátur, líkt og örn sem steypir sér yfir bráð.
27
Ef ég hugsa: „Ég ætla að gleyma harmi mínum, breyta um svip og verða glaðlegur,“
28
þá hryllir mig við þjáningum mínum, ég veit að þú sýknar mig ekki.
29
Ég er þegar sakfelldur, hvers vegna erfiða ég þá til einskis?
30
Þvægi ég mér úr snjó og hreinsaði hendur mínar með lút
31
mundir þú dýfa mér í díkið svo að klæðum mínum byði við mér.
32
Guð er ekki maður eins og ég, að ég geti svarað honum og við mæst fyrir rétti.
33
Enginn er til sem getur skorið úr málum vorum og lagt hönd sína yfir oss báða.
34
Ég vildi að hann létti af mér svipu sinni svo að óttinn við hann kvelji mig ekki framar.
35
Þá mun ég tala án þess að skelfast hann en eins og komið er fyrir mér get ég það ekki.
← Chapter 8
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 10 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→