bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 5
Job 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 6 →
1
Hrópaðu nú. Heldur þú að einhver svari þér? Til hvers hinna heilögu ætlarðu að snúa þér?
2
Gremjan gerir út af við heimskingjann og ákafinn verður einfeldningnum að bana.
3
Ég hef sjálfur séð heimskingja festa rætur en ég formælti bústað hans þegar í stað.
4
Börn hans voru heillum horfin og troðin niður í borgarhliðinu þar sem enginn var til að bjarga þeim.
5
Uppskeru hans át hungraður maður, sótti hana jafnvel inn í þyrna, hinn þyrsti ásældist auð hans.
6
Nei, bölið sprettur ekki úr moldinni og þjáningin vex ekki úr jarðveginum
7
heldur er maðurinn borinn til böls eins og neistar sem þeytast upp.
8
Ég mundi leita til Guðs og leggja mál mín fyrir hann
9
sem vinnur ómæld stórvirki, kraftaverk sem ekki verður tölu á komið.
10
Hann gefur jörðinni regn og sendir vatn yfir vellina.
11
Hann upphefur smælingja og syrgjendum verður hjálpað.
12
Hann spillir ráðum lævísra og hendur þeirra fá engu áorkað.
13
Hann geldur slóttugum í sömu mynt og bragðvísir falla á eigin bragði
14
svo að þeir lenda í myrkri um miðjan dag og þreifa fyrir sér á hádegi eins og um nótt.
15
Hann bjargar snauðum frá sverði munns þeirra og úr greipum hins volduga.
16
Þannig öðlast hinn hjálparlausi von og vonskan lokar gini sínu.
17
Sæll er sá sem Guð leiðbeinir, sá sem hafnar ekki ögun Hins almáttka
18
því að hann særir en bindur um, hann slær en hendur hans græða.
19
Úr sex nauðum bjargar hann þér, í þeirri sjöundu snertir þig ekkert illt.
20
Í hallæri bjargar hann þér frá dauða og frá mætti sverðsins í stríði.
21
Þú verður varinn fyrir svipu tungunnar og þarft ekkert að óttast þegar eyðingin kemur,
22
þú getur hlegið að eyðingu og hungri og villidýrin þarftu ekki að óttast.
23
Þú ert í bandalagi við steinana á sléttunni og dýr merkurinnar eru þér vinveitt,
24
þú verður þess vís að tjald þitt er óhult og skoðir þú bústað þinn sérðu að ekkert skortir,
25
þú kemst að raun um að niðjar þínir eru margir, afkvæmi þín sem gras á grundu,
26
þú nýtur heilsu þar til þú verður grafinn líkt og kornknippi sem sótt er á réttum tíma.
27
Þetta höfum vér hugleitt, þannig er það. Vér höfum hlustað, hafðu það hugfast.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42