bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 13
Job 13
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 14 →
1
Allt þetta sá ég með eigin augum og heyrði með eigin eyrum og skildi,
2
það sem þér vitið veit ég einnig og stend yður ekki að baki.
3
En ég ætla að tala við Hinn almáttka, ég ætla að verja mál mitt frammi fyrir Guði.
4
En þér hyljið sannleikann lygi og eruð allir ónýtir læknar.
5
Óskandi væri að þér þegðuð, það mætti meta yður til visku.
6
Hlýðið nú á vörn mína, hlustið á rökin af vörum mínum.
7
Ætlið þér að verja Guð með rangfærslum, svara fyrir hann með lygi?
8
Viljið þér taka málstað hans, vera málsvarar Guðs?
9
Getur farið vel er hann yfirheyrir yður eða getið þér blekkt hann eins og maður blekkir mann?
10
Hann mundi ávíta yður harðlega væruð þér hlutdrægir á laun.
11
Mun hátign hans ekki skelfa yður, ótti við hann ekki yfirþyrma yður?
12
Átölur yðar eru aska, svör yðar leir.
13
Þagnið nú því að ég ætla að tala og komi svo yfir mig hvað sem verða vill.
14
Ég stofna sjálfum mér í hættu og legg líf mitt undir.
15
Hann sviptir mig lífi, ég vænti einskis, vil aðeins réttlæta breytni mína frammi fyrir honum.
16
Það getur orðið mér til bjargar því að enginn óguðlegur kemur fyrir auglit hans.
17
Hlustið nú vel á ræðu mína, leggið hlustir við málflutningi mínum.
18
Nú legg ég mál mitt fyrir, ég veit að ég hef á réttu að standa.
19
Gæti nokkur ákært mig vildi ég þagna og deyja.
20
Hlífðu mér aðeins við þessu tvennu, þá þyrfti ég ekki að dyljast fyrir þér:
21
Léttu hendi þinni af mér og óttinn við þig skelfi mig ekki.
22
Kallaðu mig fyrir og ég mun svara en ef ég tala svarar þú.
23
Hve margar eru misgjörðir mínar og syndir? Gerðu mér grein fyrir afbroti mínu og synd.
24
Hvers vegna hylur þú auglit þitt og lítur á mig sem óvin þinn?
25
Ætlarðu að skelfa skrælnað laufblað, ofsækja visinn reyr
26
þar sem þú gerir mér bitra kosti og lætur mig gjalda æskusynda minna?
27
Þú leggur fætur mína í stokk, gefur gætur að vegum mínum og markar hvert fótspor mitt.
28
Maðurinn grotnar eins og maðksmoginn viður, eins og mölétin flík.
← Chapter 12
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 14 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42