bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 27
Job 27
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 28 →
1
Job hélt áfram ræðu sinni og sagði:
2
Svo sannarlega sem Guð lifir sem svipti mig rétti mínum, Hinn almáttki sem hefur fyllt líf mitt beiskju,
3
svo lengi sem ég dreg lífsanda og andi Guðs er í nösum mínum,
4
skal ósatt orð ekki fara um varir mínar og tunga mín ekki fara með lygi.
5
Það sé mér fjarri að játa að þér hafið á réttu að standa, ég stend við sakleysi mitt þar til ég dey,
6
ég ver rétt minn og sleppi honum ekki, hjarta mitt átelur mig ekki fyrir neinn af dögum mínum.
7
Fjandmanni mínum farnist sem guðleysingja, andstæðingi mínum sem illmenni.
8
Já, hver er von hins óguðlega þegar skorið er á þráðinn, þegar Guð hrífur burt líf hans?
9
Heyrir Guð neyðaróp hans þegar að honum þrengir?
10
Er Hinn almáttki yndi hans, ákallar hann Guð hvenær sem er?
11
Ég skal fræða yður um mátt Guðs, leyna engu sem Hinn almáttki hefur í huga.
12
Þér hafið allir séð þetta, hvers vegna farið þér þá með eintóman þvætting?
13
Þetta er hlutskipti óguðlegs manns hjá Guði, arfur ofbeldismanna frá Hinum almáttka.
14
Verði synir hans margir eru þeir ætlaðir sverðinu og börn hans mettast ekki af brauði.
15
Dauðinn grefur þá sem undan komast og ekkjurnar gráta ekki.
16
Ef hann hrúgar saman silfri eins og sandi og safnar að sér klæðum eins og leir,
17
safnar hann að vísu en réttlátur maður mun ganga í þeim og saklausir skipta með sér silfrinu.
18
Hann byggði hús sitt eins og köngurlóarvef, eins og skýli sem varðmaður reisir sér.
19
Ríkur leggst hann til svefns en gerir það ekki aftur. Þegar hann opnar augun er ekkert eftir.
20
Skelfingar hellast yfir hann eins og vatnsflaumur, stormsveipur ber hann burt um nótt,
21
austanvindurinn hefur hann á loft svo að hann berst af stað, feykir honum að heiman.
22
Hann ræðst vægðarlaust gegn honum, hann reynir að komast undan á flótta.
23
Menn klappa saman lófum yfir honum og flauta háðslega á eftir honum frá bústað hans.
← Chapter 26
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 28 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42