bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 20
Job 20
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 19
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 21 →
1
Sófar frá Naama svaraði og sagði:
2
Hugrenningar mínar knýja á um svör, ég er því órór í skapi.
3
Ég verð að hlusta á móðgandi ávítur en ég svara af dómgreind minni.
4
Veistu ekki að þessu hefur ætíð verið þannig varið, allt frá því Guð setti menn í heiminn,
5
að fögnuður óguðlegra er skammær og gleði ranglátra varir örskotsstund?
6
Þótt hroki hans nái til himins og hvirfill hans nemi við ský
7
hverfur hann samt að fullu eins og hans eigin saur. Þeir sem sáu hann spyrja þá: „Hvar er hann?“
8
Hann líður burt eins og draumur og finnst ekki aftur, hverfur á braut líkt og nætursýn.
9
Augað, sem sá hann, sér hann ekki framar, lítur hann aldrei aftur í bústað hans.
10
Börn hans leita ásjár hjá snauðum og með eigin höndum verður hann að afhenda auð sinn.
11
Þótt bein hans séu full af æskuþrótti leggjast þau samt í mold með honum.
12
Verði illskan sæt í munni hans, feli hann hana undir tungu sér,
13
geymi hana og sleppi ekki, treini hana undir gómi sínum,
14
þá breytist fæðan í iðrum hans og verður að nöðrueitri í líkama hans.
15
Auðnum, sem hann gleypti, varð hann að spýja, Guð þvingar hann úr kviði hans.
16
Hann saug nöðrueitur, tunga slöngunnar drap hann.
17
Aldrei fær hann að njóta rennandi lækja eða streymandi mjólkur og hunangs.
18
Hann skilar aftur ágóða sínum og neytir hans aldrei, hann fær ekki að gleðjast yfir gróðanum af vöruskiptum sínum
19
því að hann kúgaði snauða og yfirgaf þá síðan. Hann sölsaði undir sig hús en byggði ekki.
20
Hann var óseðjandi og komst því ekki undan með það sem hann hafði ásælst.
21
Ekkert komst undan græðgi hans, þess vegna varð velsæld hans skammæ.
22
Þrátt fyrir allsnægtir kemst hann í þrengingar, allur þungi mæðunnar hvílir á honum.
23
Þar sem kviður hans verður að fyllast sendir Guð honum brennandi reiði sína og lætur skelfingum sínum rigna yfir hann.
24
Flýi hann undan járnvopnum mun eirbogi skjóta í gegnum hann.
25
Hann kippir örinni úr baki sínu og blikandi oddi úr gallblöðru sinni. Þá grípur hann skelfing.
26
Myrkrið eitt bíður niðja hans, eldur, sem engin blæs að, gleypir hann og eyðir því sem eftir er í tjaldi hans.
27
Himinninn afhjúpar sekt hans og jörðin rís gegn honum.
28
Flóð skolar burt húsi hans, vatnsflaumur á degi reiðinnar.
29
Þetta kemur í hlut guðleysingja og er erfðahluti hans frá Guði.
← Chapter 19
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 21 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42