bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 6
Job 6
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 7 →
1
Job svaraði og sagði:
2
Ég vildi að gremja mín væri vegin og þjáning mín lögð á vogarskálar.
3
Þar eð hún er þyngri en sandur sjávarins voru orð mín mælt í gáleysi.
4
Já, örvar Hins almáttka sitja í mér, andi minn drekkur eitur þeirra, ógnir Guðs steðja að mér.
5
Rymur villiasni yfir grængresinu? Öskrar naut yfir fóðri sínu?
6
Verður hið bragðlausa etið saltlaust? Er nokkurt bragð að hvítu í eggi?
7
Mig velgir við að snerta þetta, það er mér eins og óhreinn matur.
8
Hver getur orðið við ósk minni? Guð láti von mína rætast.
9
Ég vildi að Guði þóknaðist að merja mig sundur, rétta fram höndina og skera á lífsþráðinn.
10
Það yrði mér til huggunar og ég mundi hoppa af gleði í vægðarlausri þjáningunni því að ég hef ekki afneitað orðum hans.
11
Hver er styrkur minn, að ég geti haldið þetta út, og hverjar horfur mínar, að ég geti verið þolinmóður?
12
Er ég styrkur sem klettur? Er líkami minn úr eir?
13
Nei, ég er ófær um að hjálpa mér sjálfur og ég fæ engu áorkað.
14
Sá sem synjar vini um samúð er hættur að óttast Hinn almáttka.
15
Bræður mínir brugðust eins og lækur, líkt og farvegir sem tæmast.
16
Þeir eru fullir af krapa og snjórinn hverfur í þeim
17
en verða vatnslitlir þegar hitnar, þorna upp í hitanum, hver á sínum stað.
18
Úlfaldalestir beygðu af leið, héldu út í auðnina og fórust.
19
Kaupmannalestir frá Tema leituðu þeirra, leiðangrar frá Saba væntu þeirra.
20
Þeir urðu sneyptir af því að vonin brást, vonsviknir þegar þeir náðu þangað.
21
Þannig eruð þér orðnir mér, þér horfið á eitthvað ógnvænlegt og skelfist.
22
Hef ég sagt: „Færið mér eitthvað, gefið mér af eignum yðar,
23
bjargið mér úr höndum kúgara og kaupið mig lausan úr greipum ofbeldismanna?“
24
Fræðið mig og ég skal þegja, sýnið mér í hverju mér varð á.
25
Geta einlæg orð sært, hvað hyggist þér átelja?
26
Ætlið þér að átelja orð? Hverfa orð örvilnaðs manns út í loftið?
27
Kastið þér hlut um munaðarleysingja og semjið þér um að selja vin yðar?
28
Lítið nú til mín, ég mun ekki ljúga upp í opið geðið á yður.
29
Hverfið aftur, ekkert ranglæti má viðgangast. Já, hverfið aftur, enn hef ég rétt fyrir mér um þetta.
30
Er ranglæti á tungu mér? Skynjar gómur minn ekki bragð að því sem er spillt?
← Chapter 5
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 7 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
Recommended Reading
Commentary
Job Commentaries
→
Devotional
Job Devotional Guide
→
Get This Bible
2007 Study Bible
→