bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 32
Job 32
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 31
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 33 →
1
Nú hættu þessir þrír menn að svara Job því að hann var réttlátur í eigin augum.
2
En reiði blossaði upp í Elíhú Barakelssyni frá Bús af Rams ætt.
3
Reiði hans brann einnig gegn þessum þremur vinum hans vegna þess að þeir fundu engin svör til að sanna sekt Jobs.
4
Elíhú hafði hikað við að tala til Jobs því að vinir hans voru eldri en hann.
5
En þegar Elíhú sá að þessir þrír menn áttu engin önnur svör blossaði reiði hans upp.
6
Þá tók Elíhú Barakelsson Búsíti til máls og sagði: Enn er ég ungur að árum en þér eruð gamlir, þess vegna hikaði ég og óttaðist að miðla yður af þekkingu minni.
7
Ég hugsaði: „Aldurinn tali, árafjöldinn kunngjöri speki.“
8
En það er andinn í mönnunum, innblástur frá Hinum almáttka, sem veitir þeim skilning.
9
Aldraðir þurfa ekki að vera vitrir, öldungar skilja ekki alltaf hvað rétt er.
10
Því segi ég: Hlustið á mig, nú ætla ég að miðla yður þekkingu minni.
11
Ég beið eftir ræðum yðar, lagði hlustir við röksemdum yðar þangað til þér funduð viðeigandi orð.
12
Ég fylgdist með yður af athygli en enginn yðar gat andmælt Job, enginn yðar gat svarað orðum hans.
13
Segið ekki: „Vér höfum fundið spekina. Guð einn fær sigrað hann, ekki maðurinn.“
14
Orðum hans var ekki beint gegn mér og ég svara honum ekki með yðar orðum.
15
Þeir hafa gefist upp, svara engu, þeim er orða vant.
16
Á ég þá að bíða meðan þeir þegja því að þeir standa þarna og geta engu svarað?
17
Ég ætla að svara fyrir mig, ég ætla einnig að miðla þekkingu minni
18
því að ég er fullur af orðum, andinn í brjósti mér knýr mig.
19
Já, brjóst mitt er sem vín í þéttum belg, það gæti brostið eins og nýir vínbelgir.
20
Ég verð að tala svo að mér létti, opna varir mínar og svara.
21
Hvorki dreg ég taum nokkurs manns né skjalla neinn
22
því að ég kann ekki að smjaðra, annars mundi skapari minn svipta mér burt innan skamms.
← Chapter 31
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 33 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42