bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 21
Job 21
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 22 →
1
Job svaraði og sagði:
2
Hlýðið á mál mitt með athygli. Það væri huggun af yðar hálfu.
3
Sýnið þolinmæði svo að ég geti talað. Þegar ég hef talað getið þér hætt mig.
4
Beini ég harmatölum mínum til manna? Hví skyldi ég ekki vera óþolinmóður?
5
Lítið á mig og látið yður bregða, leggið hönd á munn.
6
Hugsi ég til þess skelfist ég og skjálfti fer um mig.
7
Hvers vegna lifa óguðlegir, eldast, eflast og styrkjast?
8
Börn þeirra dafna hjá þeim og niðjar þeirra fyrir augum þeirra.
9
Hús þeirra eru óhult og óttalaus, vöndur Guðs ógnar þeim ekki.
10
Naut þeirra kelfir og gagnast, kýr þeirra ber og lætur ekki kálfi.
11
Þeir láta börn sín út eins og sauðahjörð og börnin dansa,
12
þau syngja við undirleik páku og gígju og fagna við flaututóna.
13
Þeir njóta lífsins alla ævi og fara í friði til undirheima.
14
Samt segja þeir við Guð: „Farðu frá oss. Vegi þína viljum vér ekki þekkja.
15
Hvað er Hinn almáttki, að vér skyldum þjóna honum? Hvað gagnast oss að leita til hans?“
16
En gæfan er ekki í hendi þeirra og ráð óguðlegra eru mér framandi.
17
Hversu oft slokknar á lampa óguðlegra svo að verðskulduð ógæfa hendir þá og Guð skammtar þeim kvöl í reiði sinni?
18
Hversu oft verða þeir þá sem hálmur í vindi eða fjúkandi hismi í stormi?
19
Guð ætti ekki að geyma niðjum neins það böl sem honum ber heldur gjalda honum sjálfum svo að hann kenni á því,
20
sjái ófarnað sinn með eigin augum og drekki af reiði Hins almáttka.
21
Hvað hirðir hann um hús sitt eftir dauðann þegar tala mánaða hans er fullnuð?
22
Hver getur frætt Guð um þetta, hann sem dæmir í upphæðum?
23
Einn deyr í blóma lífsins áhyggjulaus og ánægður,
24
innyfli hans þakin fitu og beinin full af safaríkum merg.
25
En annar deyr bitur í bragði og smakkaði aldrei nein lífsgæði.
26
Þeir hvíla báðir í mold og maðkar hylja þá.
27
Ég þekki hugsanir yðar og ráðagerðir, að leika mig grátt,
28
því að þér spyrjið: „Hvar er hús göfugmennisins, hvar er tjaldið sem óguðlegir búa í?“
29
Hafið þér ekki spurt ferðamenn því að sönnunum þeirra hafnið þér ekki?
30
Á óheilladeginum verður hinum vonda þyrmt, á reiðideginum verður honum skotið undan.
31
Hver leiðir honum breytni hans fyrir sjónir, hver launar honum verk hans?
32
Hann verður borinn til grafar og verðir settir við gröf hans.
33
Moldin í dalnum veitir honum hvíld. Alþjóð fylgir honum og aragrúi fer fyrir honum.
34
Hvernig ætlið þér að hugga mig með hégóma? Svör yðar eru aðeins blekkingar.
← Chapter 20
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 22 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42