bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Job 8
Job 8
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 9 →
1
Þá svaraði Bildad frá Súa og sagði:
2
Hversu lengi ætlar þú að tala þannig? Orðin í munni þínum eru hvassviðri.
3
Hallar Guð réttinum eða hallar Hinn almáttki réttlætinu?
4
Hafi börn þín syndgað gegn honum ofurseldi hann þau eigin misgjörðum.
5
Hafir þú sjálfur gert það skaltu leita Guðs og biðja Hinn almáttka miskunnar.
6
Sértu hreinn og beinn mun hann vakna til að sinna þér og endurreisa bústað þinn eins og þú verðskuldar.
7
Þá verður fortíð þín léttvæg en framtíð þín glæst.
8
Spyrðu fyrri kynslóðir og gefðu gaum að reynslu feðranna
9
því að vér erum frá því í gær og vitum ekkert og dagar vorir á jörðinni eru skuggi.
10
Munu þeir ekki fræða þig, segja þér frá og flytja boðskap úr hugarheimi sínum?
11
„Vex papýrussef nema í mýri, sprettur stör án vatns?
12
Óslegið og í blóma skrælnar það á undan öðru grasi.“
13
Þannig fer fyrir öllum sem gleyma Guði og von guðleysingjans verður að engu.
14
Hann treystir veikum þráðum, reiðir sig á köngurlóarvef.
15
Hann styður sig við hús sitt en það stendur ekki, grípur í það en það lætur undan.
16
Hann er safarík jurt í sólskini og rótarskotin teygja sig um garðinn.
17
Rætur hans fléttast um grjótið og festast milli steina.
18
Verði hann upprættur af stað sínum hafnar staðurinn honum og segir: „Ég hef aldrei séð þig áður.“
19
Já, þannig rennur ævi hans út í sandinn en annar sprettur úr moldinni.
20
Nei, Guð hafnar aldrei hinum vammlausa, styrkir ekki hönd illvirkjans.
21
Einhvern tíma fyllir hann munn þinn hlátri og varir þínar gleðihrópum.
22
Hatursmenn þínir hyljast smán og tjald guðleysingja stendur ekki lengur.
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 9 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42