bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 10
Isaiah 10
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 11 →
1
Vei þeim sem setja ranglát lög og skjalfesta skaðleg ákvæði
2
til að halda umkomulausum frá dómstólum og ræna þá snauðu meðal þjóðar minnar rétti sínum, til að féfletta ekkjur og ræna munaðarlausa.
3
Hvað ætlið þér að gera á degi uppgjörsins þegar illviðrið kemur úr fjarska? Hjá hverjum ætlið þér að leita ásjár, hvar ætlið þér að geyma auðæfi yðar?
4
Þeir munu hnipra sig saman innan um fanga, liggja meðal hinna vegnu. Samt sefaðist reiði Drottins ekki, hönd hans er enn upp reidd.
5
Vei Assúr, vendi reiði minnar. Kylfa heiftar minnar er í hendi hans.
6
Ég sendi hann gegn guðlausri þjóð, skipa honum gegn fólki sem ég reiðist, til að taka herfang og ræna og traðka fólkið niður eins og for á stræti.
7
En þetta er ekki það sem hann ætlar sér, hann hyggur ekki á þetta. Hann hefur aðeins eyðingu í huga, að afmá fjölmargar þjóðir.
8
Því að hann hefur sagt: „Eru ekki allir höfðingjar mínir konungar?
9
Fór ekki fyrir Kalne eins og Karkemis, Hamat eins og Arpad, fyrir Samaríu eins og Damaskus?
10
Hönd mín náði til ríkja þessara skurðgoða þótt líkneski þeirra væru fleiri en í Jerúsalem og Samaríu.
11
Get ég ekki farið með Jerúsalem og skurðgoðin þar eins og ég fór með Samaríu og hjáguðina þar?“
12
En þegar Drottinn hefur lokið öllu starfi sínu á Síonarfjalli og í Jerúsalem segir hann: „Ég mun refsa Assýríukonungi fyrir ávöxtinn af hroka hans og drembilegt oflæti augna hans.
13
Því að hann segir: Með afli eigin handar gerði ég þetta og með eigin skynsemi því að ég er vitur. Ég færði landamæri þjóða úr stað og rændi fjársjóðum þeirra og sem hetja hratt ég konungum þeirra af stóli.
14
Líkt og þegar seilst er í hreiður greip hönd mín í auðæfi þjóðanna. Eins og yfirgefnum eggjum er safnað safnaði ég öllum heimsins löndum, enginn blakaði væng, lauk upp nefi eða tísti.“
15
Hefur öxin sig yfir þann sem heggur með henni, hreykir sögin sér yfir þann sem sagar með henni? Það væri eins og stafur veifaði þeim sem lyftir honum eða kylfa sveiflaði þeim sem ekki er úr tré.
16
Þess vegna mun Drottinn, Drottinn allsherjar, senda uppdráttarsýki í þróttmikla hermenn hans. Undir dýrð hans mun eldur loga eins og brennandi bál.
17
Ljós Ísraels verður að eldi og Hinn heilagi Ísraels að loga sem kveikir í og gleypir þyrna hans og þistla á einum og sama degi.
18
Gróskumiklir skógar hans og aldingarðar verða upprættir með öllu eins og sjúklingur sem veslast upp.
19
Skógartrén, sem verða eftir, reynast svo auðtalin að drenghnokki getur skráð þau.
20
Á þeim degi munu þeir sem eftir verða af Ísrael og þeir af ætt Jakobs sem komust af ekki lengur reiða sig á þann sem sló þá. Þeir munu reiða sig á Drottin, Hinn heilaga Ísraels, í trúfesti.
21
Leifar munu snúa aftur, leifar Jakobs, til hins máttuga Guðs.
22
Enda þótt fólksfjöldi þinn, Ísrael, yrði sem sjávarsandur munu aðeins leifar snúa aftur: Eyðing er fastráðin, réttlætið mun streyma fram.
23
Því að Drottinn, Drottinn allsherjar, mun framkvæma þá eyðingu sem er fastráðin um alla jörð.
24
Þess vegna segir Drottinn, Drottinn allsherjar: Þjóð mín, sem býrð á Síon, óttastu ekki Assúr sem slær þig með barefli og reiðir að þér staf sinn eins og Egyptar forðum.
25
Því að eftir skamma hríð er reiði mín á enda og heift mín mun beinast að eyðingu þeirra.
26
Þá mun Drottinn allsherjar láta svipuna ríða á þeim eins og þegar hann sigraði Midían hjá Órebkletti. Hann réttir staf sinn út yfir hafið eins og í Egyptalandi forðum.
27
Á þeim degi verður byrði hans létt af herðum þínum og oki hans af hálsi þínum því að okið brestur undan ofurfitu.
28
Assúr heldur gegn Ajat, fer um Mígron, skilur eftir farangurinn í Mikmas.
29
Þeir fara um skarðið og segja: „Geba er gististaður vor.“ Rama skelfist, Gíbea Sáls leggur á flótta.
30
Hljóða þú hástöfum, dóttirin Gallím. Hlustaðu Lejsa, svaraðu Anatót,
31
Madmena leggur á flótta, íbúar Gebím sluppu.
32
Í dag er hann í Nób, hann bendir á fjall dótturinnar Síonar, Jerúsalemhæð.
33
Drottinn, Drottinn allsherjar, mun höggva laufkrónuna af með ógnarafli, hæstu tré verða höggvin og þau sem gnæfa hátt munu lægð.
34
Skógarþykknið verður rutt með öxi og Líbanon fellur fyrir Hinum volduga.
← Chapter 9
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 11 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66