bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 43
Isaiah 43
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 42
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 44 →
1
En nú segir Drottinn svo, sá sem skóp þig, Jakob, og myndaði þig, Ísrael: Óttast þú ekki því að ég frelsa þig, ég kalla á þig með nafni, þú ert minn.
2
Gangir þú gegnum vötnin er ég með þér, gegnum vatnsföllin, þá flæða þau ekki yfir þig. Gangir þú gegnum eld skalt þú ekki brenna þig og loginn mun ekki granda þér.
3
Því að ég, Drottinn, er Guð þinn, ég, Hinn heilagi Ísraels, frelsari þinn. Ég læt Egyptaland í lausnargjald fyrir þig, Kús og Seba í þinn stað,
4
þar sem þú ert dýrmætur í augum mínum, mikils metinn og ég elska þig. Ég legg menn í sölurnar fyrir þig og þjóðir fyrir líf þitt.
5
Óttast þú ekki því að ég er með þér. Ég mun flytja niðja þína úr austri og safna þér saman úr vestri.
6
Ég segi við norðrið: „Slepptu þeim,“ og við suðrið: „Lát þá lausa. Komdu með syni mína heim úr fjarlægð og dætur mínar frá endimörkum jarðar,
7
sérhvern þann sem við nafn mitt er kenndur, því að ég hef skapað hann mér til dýrðar, myndað hann og mótað.“
8
Færið fram hina blindu þjóð sem þó hefur augu og hina heyrnarlausu menn sem þó hafa eyru.
9
Allar þjóðir skulu safnast í einn hóp og lýðirnir koma saman. Hver þeirra gat boðað þetta og skýrt oss frá því sem varð? Leiði þeir fram vitni sín og færi sönnur á mál sitt svo að þeir sem heyra segi: „Þetta er rétt.“
10
Þér eruð vottar mínir, segir Drottinn, þjónn minn sem ég hef útvalið svo að þér vitið og trúið mér. Skiljið að ég er hann. Enginn guð var myndaður á undan mér og eftir mig verður enginn til.
11
Ég er Drottinn, ég einn, og enginn frelsari er til nema ég.
12
Það var ég sem boðaði, frelsaði og kunngjörði þetta en enginn framandi guð á meðal yðar. Þér eruð vottar mínir, segir Drottinn, að það er ég sem er Guð.
13
Héðan í frá er ég einnig hinn sami, enginn hrifsar neitt úr hendi minni, ég framkvæmi, hver fær aftrað því?
14
Svo segir Drottinn, lausnari yðar, Hinn heilagi Ísraels: Yðar vegna sendi ég til Babýlonar, ríf niður alla slagbranda en fögnuður Kaldea verður harmakvein.
15
Ég, Drottinn, er yðar Heilagi, skapari Ísraels er konungur yðar.
16
Svo segir Drottinn sem lagði veg yfir hafið og braut yfir hin ströngu vötn,
17
hann sem leiddi út vagna og hesta ásamt öflugum her en þeir liggja kyrrir og rísa ekki aftur, þeir kulnuðu út eins og hörkveikur.
18
Minnist hvorki hins liðna né hugleiðið það sem var.
19
Nú hef ég nýtt fyrir stafni, nú þegar vottar fyrir því, sjáið þér það ekki? Ég geri veg um eyðimörkina og fljót í auðninni.
20
Dýr merkurinnar munu tigna mig, sjakalar og strútar, því að ég læt vatn spretta upp í eyðimörkinni og fljót í auðninni til að svala minni útvöldu þjóð.
21
Þjóðin, sem ég myndaði handa mér, mun flytja lofgjörð um mig.
22
Þú hefur ekki ákallað mig, Jakob, né þreytt þig mín vegna, Ísrael.
23
Þú færðir mér ekki lömb í brennifórnir og tignaðir mig ekki með sláturfórnum þínum. Ég hef hvorki íþyngt þér með kornfórnum né þreytt þig með reykelsisfórnum,
24
þú hefur hvorki keypt mér ilmreyr fyrir fé né satt mig á feiti sláturfórna þinna. Nei, þú hefur þreytt mig með syndum þínum, íþyngt mér með sekt þinni.
25
Ég afmái afbrot þín sjálfs mín vegna, ég einn, og minnist ekki synda þinna.
26
Stefndu mér, við skulum eigast lög við, verðu þig svo að þú getir réttlætt þig.
27
Fyrsti forfaðir þinn syndgaði og talsmenn þínir brutu gegn mér.
28
Þess vegna vanhelgaði ég hina heilögu höfðingja og ofurseldi Jakob banni og Ísrael háðung.
← Chapter 42
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 44 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66