bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 66
Isaiah 66
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 65
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
1
Svo segir Drottinn: Himinninn er hásæti mitt og jörðin fótskör mín. Hvar er húsið sem þér gætuð reist mér, hvar sá staður sem verið gæti hvíldarstaður minn?
2
Allt þetta gerði hönd mín og allt þetta er mitt, segir Drottinn. Samt lít ég til þess sem er umkomulaus og beygður í anda og skelfur fyrir orði mínu.
3
Sá sem slátrar nauti er engu mætari en manndrápari, sá sem færir sauð í sláturfórn er engu mætari en sá sem hefur hálsbrotið hund, sá sem færir kornfórn ber fram svínablóð, sá sem brennir reykelsi blessar skurðgoð.
4
Þeir völdu sína eigin vegi og gleðjast yfir viðurstyggðum sínum, eins valdi ég þeim misþyrmingar og sendi það yfir þá sem þeir skelfast því að ég hrópaði en enginn svaraði, talaði en enginn hlustaði. Þeir gerðu það sem illt var í augum mínum og höfðu mætur á því sem mér mislíkaði.
5
Heyrið orð Drottins, þér sem skjálfið fyrir boðskap hans. Bræður yðar, sem hata yður og hrekja yður brott vegna nafns míns, segja: „Drottinn birtist í dýrð sinni svo að vér getum séð gleði yðar,“ en þeir skulu til skammar verða.
6
Heyr gnýinn frá borginni, heyr óminn frá musterinu. Heyr, Drottinn endurgeldur fjandmönnum sínum verk þeirra.
7
Áður en kona fær hríðir hefur hún fætt, áður en hún tekur jóðsótt hefur hún alið sveinbarn.
8
Hver hefur heyrt annað eins, hver séð nokkuð þessu líkt? Fæðist land á einum degi, þjóð í einni andrá? Óðar en Síon fékk hríðir fæddi hún syni sína.
9
Opna ég móðurlíf án þess að barn fæðist eða læt ég fæðingu hefjast og hindra hana síðan? segir Guð þinn.
10
Gleðjist með Jerúsalem og fagnið í henni, allir þér sem elskið hana, fagnið með henni og kætist, allir þér sem eruð hryggir hennar vegna
11
svo að þér getið sogið og saðst af huggunarbrjósti hennar, svo að þér getið teygað og gætt yður á nægtabarmi hennar.
12
Því að svo segir Drottinn: Ég veiti velsæld til hennar eins og fljóti og auðæfum þjóðanna eins og bakkafullum læk. Brjóstmylkingar hennar verða bornir á mjöðminni og þeim hossað á hnjánum.
13
Eins og móðir huggar barn sitt, eins mun ég hugga yður, í Jerúsalem verðið þér huggaðir.
14
Þegar þér sjáið þetta mun hjarta yðar fagna og bein yðar blómgast sem grængresi. Hönd Drottins birtist þjónum hans en reiðin bitnar á fjandmönnum hans.
15
Því sjá, Drottinn kemur í eldi og stríðsvagnar hans verða sem stormsveipur, hann kemur til að endurgjalda með glóandi reiði sinni og logandi heift sinni.
16
Því að Drottinn kemur í eldi til að dæma alla jörðina og allt hold með sverði sínu og margir verða vegnir af Drottni.
17
Þeir sem helga sig og hreinsa til að fara í garðana og leita þann uppi sem er í miðjunni, eta svínakjöt, maðka og mýs, munu allir farast, segir Drottinn. Ég þekki athafnir þeirra og hugsanir.
18
Ég mun sjálfur koma til að stefna saman öllum þjóðum og tungum og þær munu koma og sjá dýrð mína.
19
Ég mun setja upp tákn á meðal þeirra og senda þá sem undan komust til þjóðanna í Tarsis, Pút, Lúd, Mesek, Túbal, Javan og á hinum fjarlægu eyjum sem hvorki hafa heyrt neitt um mig né séð dýrð mína og þeir skulu skýra frá dýrð minni meðal þjóðanna.
20
Þeir skulu flytja alla bræður yðar frá öllum þjóðum sem fórnargjöf til Drottins, á hestum og í vögnum og burðarstólum, á múldýrum og úlföldum til míns heilaga fjalls, til Jerúsalem, segir Drottinn, eins og þegar Ísraelsmenn færa kornfórn í hreinum kerum til húss Drottins.
21
Ég mun jafnvel velja nokkra þeirra til að vera prestar og Levítar, segir Drottinn.
22
Já, eins og hinn nýi himinn og hin nýja jörð, sem ég skapa, standa frammi fyrir augliti mínu, segir Drottinn, munu niðjar yðar og nafn standa þar.
23
Frá tunglkomudegi til tunglkomudags og frá hvíldardegi til hvíldardags koma allir menn til að falla fram fyrir augliti mínu, segir Drottinn.
24
Þeir munu ganga út og sjá lík þeirra sem risu gegn mér. Hvorki deyja í þeim maðkarnir né slokknar í þeim eldurinn og þeir verða öllum mönnum viðurstyggð.
← Chapter 65
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66