bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 51
Isaiah 51
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 50
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 52 →
1
Hlýðið á mig, þér sem sækist eftir réttlæti, þér sem leitið Drottins. Lítið á klettinn sem þér voruð höggnir af og brunninn sem þér voruð grafnir úr.
2
Lítið á Abraham, föður yðar, og Söru sem ól yður, því að hann var einn þegar ég kallaði hann og ég blessaði hann og jók kyn hans.
3
Því að Drottinn huggar Síon, huggar allar rústir hennar, gerir eyðimörk hennar sem Eden og auðn hennar eins og garð Drottins. Í henni verður gleði og fögnuður, þakkargjörð og hljóðfærasláttur.
4
Hlýðið á mig, þjóðir, og hlustið á mig, lýðir, því að frá mér mun kenning út ganga og réttur minn verður þjóðunum ljós.
5
Brátt nálgast réttlæti mitt, hjálpræði mitt kemur og armar mínir munu færa þjóðunum rétt, eyjarnar vænta mín og bíða arms míns.
6
Hefjið augu yðar til himins og virðið fyrir yður jörðina hér niðri. Himinninn mun leysast sundur sem reykur, jörðin fyrnast sem fat og íbúar hennar deyja sem mý. En hjálpræði mitt er ævarandi og réttlæti mitt líður ekki undir lok.
7
Hlýðið á mig, þér sem þekkið réttlæti, þjóðin sem ber lögmál mitt í hjarta sínu. Óttist ekki spott manna, hræðist ekki smánaryrði þeirra,
8
því að mölur mun éta þá sem klæði og maur éta þá eins og ull. En réttlæti mitt er ævarandi og hjálpræði mitt varir frá kyni til kyns.
9
Vakna þú, vakna, íklæð þig styrk, þú armur Drottins, vakna þú eins og í árdaga, á tímum löngu genginna kynslóða. Varst það ekki þú sem hjóst Rahab og lagðir drekann í gegn?
10
Varst það ekki þú sem þurrkaðir upp hafið, vötnin í hinu mikla frumdjúpi, sem gerðir hafdjúpið að vegi svo að hinir endurleystu kæmust yfir?
11
Hinir endurkeyptu Drottins snúa aftur og koma fagnandi til Síonar. Eilíf gleði fer fyrir þeim, fögnuður og gleði fylgir þeim, en sorg og sút leggja á flótta.
12
Ég hugga yður, ég sjálfur. Hver ert þú þá sem óttast dauðlega menn og mannanna börn sem falla sem grasið
13
en gleymir Drottni, skapara þínum, sem þandi út himininn og lagði grunn að jörðinni? Þú óttast heift kúgarans sérhvern dag, að hann ákveði að eyða þér. En hvar er þá heift kúgarans?
14
Brátt verður bandinginn leystur, hann mun ekki deyja í dýflissu og ekki skorta brauð.
15
Ég er Drottinn, Guð þinn, sá sem æsir hafið svo að brimið gnýr. Drottinn allsherjar er nafn hans.
16
Ég lagði þér orð mín í munn, skýldi þér í skugga handar minnar, þegar ég þandi út himininn, grundvallaði jörðina og sagði við Síon: Þú ert lýður minn.
17
Vakna þú, vakna, rís upp, Jerúsalem, þú sem varðst að drekka bikar reiðinnar sem Drottinn rétti að þér. Þú drakkst vímubikarinn í botn.
18
Af öllum þeim sonum sem Síon ól leiddi hana enginn, af öllum þeim sonum sem hún fóstraði tók enginn í hönd hennar.
19
Þetta tvennt henti þig, hver sýnir þér hluttekningu? Glötun og tortíming, hungur og sverð, hver huggar þig?
20
Synir þínir lágu í öngviti á hverju götuhorni eins og hirtir veiddir í net, fullir af reiði Drottins, af hirtingu Guðs þíns.
21
Hlustaðu því á þetta, auma borg, þú sem ert drukkin, þó ekki af víni.
22
Svo segir Drottinn, Guð þinn, Guð þinn sem ver málstað þjóðar sinnar: Nú tek ég vímubikarinn úr hendi þér, skál reiði minnar, af henni skaltu ekki framar bergja.
23
Ég fæ hana þeim í hendur sem kúguðu þig og sögðu við þig: „Leggstu niður svo að vér getum troðið á þér.“ Og þú gerðir bak þitt eins og völl, eins og veg fyrir vegfarendur.
← Chapter 50
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 52 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66