bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 59
Isaiah 59
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 58
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 60 →
1
Sjá, hönd Drottins er eigi svo stutt að hann geti ekki hjálpað og eyra hans ekki svo dauft að hann heyri ekki.
2
Nei, sekt yðar skilur yður frá Guði yðar, syndir yðar hylja auglit hans svo að hann hlustar ekki á yður.
3
Lófar yðar eru ataðir blóði og fingur yðar misgjörðum, varir yðar tala lygi, tunga yðar hvíslar rógi.
4
Enginn kærir vegna rétts málstaðar og enginn fer í mál af heilindum, menn treysta fánýti og fara með þvaður, ganga með fals og fæða illgjörðir.
5
Þeir klekja út nöðrueggjum og vefa köngulóarvef, hver sem etur egg þeirra deyr, sé á þeim troðið klekjast eiturnöðrur.
6
Spuni þeirra verður aldrei klæði og enginn klæðist vefnaði þeirra. Verk þeirra eru ódæði og ofbeldi er í lófum þeirra.
7
Fætur þeirra eru skjótir til ills, fljótir til að úthella saklausu blóði. Hugsanir þeirra eru illar, eyðing og tortíming er á vegum þeirra.
8
Veg friðarins þekkja þeir ekki og réttlæti er ekki í sporum þeirra. Þeir gerðu vegi sína hlykkjótta, enginn, sem á þeim gengur, þekkir frið.
9
Því er rétturinn oss fjarlægur og réttlætið nær ekki til vor. Vér væntum ljóss en það er myrkur, væntum dagsbirtu en göngum í niðdimmu.
10
Vér þreifum oss fram með vegg eins og blindir, fálmum líkt og menn án augna. Vér hrösum um hábjartan dag eins og í rökkri, erum sem dauðir meðal þeirra sem eru í blóma lífsins.
11
Vér rymjum allir sem birnir, kurrum eins og dúfur, vér væntum réttar en hann er ekki hér, væntum hjálpar en hún er oss fjarri.
12
Vér höfum oft brotið gegn þér og syndir vorar vitna gegn oss. Þar sem afbrot vor eru stöðugt hjá oss þekkjum vér syndir vorar.
13
Vér höfum risið gegn Drottni og afneitað honum, snúið frá fylgd við Guð vorn, hvatt til ofbeldis og svika, alið á lygum í hjarta og boðað þær.
14
Þannig er rétturinn hrakinn burt og réttlæti stendur víðs fjarri því að sannleikurinn hrasaði á torginu, hreinskilnin komst ekki að.
15
Sannleikann er hvergi að finna, sá sem forðast illt verður rændur. Drottinn sá það og honum mislíkaði réttleysið.
16
Hann sá að þar var enginn, undraðist að enginn skarst í leikinn en armur hans sjálfs hjálpaði honum og réttlæti hans studdi hann.
17
Hann íklæddist réttlæti sem brynju og hjálmur hjálpræðis var á höfði hans, hann klæddist klæðum hefndarinnar, sveipaði sig skikkju afbrýðinnar.
18
Hann geldur eftir verkum: eins og menn hafa unnið til, svo mun hann gjalda, geldur heift andstæðingum sínum, refsingu fjandmönnum, út til eyjanna endurgeldur hann.
19
Þá munu menn óttast nafn Drottins í vestri og dýrð hans í austri því að hann brýst fram eins og á í vexti sem stormur frá Drottni knýr fram.
20
En lausnarinn mun koma til Síonar, til þeirra af niðjum Jakobs sem hverfa frá synd, segir Drottinn.
21
Þetta er sáttmáli minn við þá, segir Drottinn: Andi minn, sem er yfir þér, orð mín, sem ég lagði þér í munn, skulu hvorki víkja úr þínum munni né munni niðja þinna, né frá munni niðja niðja þinna, segir Drottinn, héðan í frá og að eilífu.
← Chapter 58
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 60 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66