bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 48
Isaiah 48
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 47
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 49 →
1
Hlýðið á þetta, Jakobsniðjar, sem nefndir eruð nafni Ísraels og komnir eruð af Júda, þér sem sverjið við nafn Drottins og lofið Guð Ísraels en hvorki í einlægni né sannleika.
2
Þeir kenna sig við hina helgu borg og styðjast við Guð Ísraels, nafn hans er Drottinn allsherjar.
3
Fyrri atburði boðaði ég fyrir löngu, munnur minn boðaði það og ég gerði það heyrinkunnugt, óvænt kom ég því til leiðar og það varð.
4
Þar sem ég vissi að þú ert þrjóskur og sinin í hnakka þínum úr járni og ennið úr eir
5
boðaði ég þér þetta fyrir löngu, lét þig heyra það áður en það varð svo að þú gætir ekki sagt: Skurðgoð mitt gerði það, líkneski mitt og eirmynd mín gaf fyrirmælin.
6
Þú hefur heyrt þetta, horfðu nú á það allt, ætlarðu ekki að boða það öðrum? Nú boða ég þér nýja hluti, hulda hluti sem voru þér óþekktir.
7
Nú fyrst verður það skapað en ekki fyrir löngu. Þú hefur ekki heyrt þetta fyrr en í dag svo að þú getur ekki sagt: „Ég vissi það áður.“
8
Þú hefur hvorki heyrt þetta áður né vitað um það, fyrrum hafðir þú ekki opin eyrun og ég vissi vel að þú ert svikull og varst kallaður heitrofi frá fæðingu.
9
Vegna nafns míns sefa ég reiði mína og vegna sæmdar minnar þyrmi ég þér svo að ég tortími þér ekki.
10
Ég hreinsaði þig, þó ekki sem silfur, ég reyndi þig í bræðsluofni þjáningarinnar.
11
Mín vegna, sjálfs mín vegna, geri ég þetta, ella vanhelgast nafn mitt. Sæmd mína gef ég engum öðrum.
12
Hlýð á mig, Jakob, og Ísrael sem ég hef kallað: Ég er hann, ég er hinn fyrsti og ég er einnig hinn síðasti.
13
Hönd mín grundvallaði jörðina og hægri hönd mín þandi út himininn. Kalli ég á þau bregðast þau við.
14
Safnist allir saman og hlýðið á, hver þeirra hefur sagt þetta fyrir? Sá sem Drottinn elskar, mun framkvæma vilja hans á Babýlon og vera armur hans gegn Kaldeum.
15
Það er ég, það er ég sem talaði og kallaði hann, ég sótti hann og veitti honum brautargengi.
16
Komið til mín og heyrið þetta: Frá upphafi hef ég aldrei talað í leyndum og frá því þetta varð hef ég verið hér. Nú hefur Drottinn Guð sent mig og anda sinn.
17
Svo segir Drottinn, lausnari þinn, Hinn heilagi Ísraels: Ég er Drottinn, Guð þinn, sem kenni þér það sem gagnlegt er, leiði þig þann veg sem þú skalt ganga.
18
Aðeins ef þú hefðir gefið gaum að boðum mínum væri hamingja þín sem fljót og réttlæti þitt eins og öldur hafsins,
19
niðjar þínir væru sem sandur og börn þín eins og sandkorn. Nafn þeirra væri hvorki afmáð né því eytt fyrir augliti mínu.
20
Farið frá Babýlon, flýið frá Kaldeum. Kunngjörið þetta með fagnaðarópi og boðið það til endimarka jarðar, hrópið: „Drottinn hefur frelsað þjón sinn, Jakob.“
21
Þá þyrsti ekki þegar hann leiddi þá um auðnina, hann lét vatn streyma úr kletti handa þeim þegar hann klauf klöppina og vatn vall fram.
22
„Óguðlegir hljóta engan frið,“ segir Drottinn.
← Chapter 47
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 49 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66