bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 22
Isaiah 22
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 23 →
1
Boðskapur um Sýnadal: Hvað hefur komið fyrir þig fyrst allir íbúarnir eru farnir upp á þökin,
2
þú hávaðasama borg, full af skarkala, fagnandi virki? Íbúar þínir, sem féllu, féllu ekki fyrir sverði, þeir létu ekki lífið í orrustu.
3
Allir leiðtogar þínir flýðu í einu og náðust án þess að skotið væri af boga. Allir, sem til náðist, voru gripnir þó að þeir hefðu flúið langt.
4
Þess vegna segi ég: „Horfið ekki á mig, ég verð að gráta beisklega. Reynið ekki að hugga mig því að dóttir þjóðar minnar er eydd.“
5
Dagur skelfingar, eyðingar og upplausnar kom frá Guði, Drottni allsherjar, í Sýnadal. Múrarnir voru brotnir niður, neyðaróp glumdu í fjöllunum.
6
Elam tók örvamæli, mannaði hervagna dregna af hestum og Kír tók fram skjöldinn.
7
Fegurstu dalir þínir fylltust hervögnum, riddarar fylktu liði gegn borgarhliðinu.
8
Hann svipti burt vörn Júda. Á þeim degi leist þú eftir herbúnaðinum í Skógarhúsinu.
9
Þér sáuð að margar sprungur voru í múrum Davíðsborgar og söfnuðuð vatni í neðri tjörnina,
10
tölduð húsin í Jerúsalem og rifuð nokkur þeirra til að treysta með borgarmúrinn.
11
Þér gerðuð þró milli beggja borgarmúranna fyrir vatnið úr gömlu tjörninni. En þér lituð ekki til þess sem hafði gert þetta, sáuð ekki að hann hafði mótað það fyrir löngu.
12
Guð, Drottinn allsherjar, hvatti menn á þeim degi til að gráta og kveina, til að raka á sig skalla og gyrða sig hærusekk.
13
En þess í stað ríkti glaumur og gleði, naut voru felld, sauðum slátrað, kjöt snætt og vín drukkið: „Etum og drekkum því að á morgun deyjum vér.“
14
En Drottinn allsherjar lét hljóma í eyrum mínum: „Þessi sekt verður yður ekki fyrirgefin fyrr en þér deyið,“ segir Guð, Drottinn allsherjar.
15
Svo segir Guð, Drottinn allsherjar: Farðu til bústjórans hérna, Sebna hallarráðsmanns, og segðu:
16
Hvað leyfirðu þér að gera og hvern áttu hér að fyrst þú lætur höggva þér gröf hér? Þú heggur þér gröf hátt uppi og meitlar þér bústað í klettinum.
17
En Drottinn mun fleygja þér burt, mikilmenni, hann þrífur þig,
18
vöðlar þér þétt saman og þeytir þér eins og bolta út á víðan vang. Þar muntu deyja og þar verða glæsivagnar þínir, þú sem ert fjölskyldu húsbónda þíns til skammar.
19
Ég steypi þér úr stöðu þinni, rek þig úr embætti þínu.
20
Á þeim degi mun ég kalla þjón minn, Eljakím Hilkíason.
21
Ég færi hann í kyrtil þinn, gyrði hann belti þínu og fæ honum völd þín í hendur. Hann skal verða faðir Jerúsalembúa og ættbálks Júda.
22
Ég legg lykilinn að húsi Davíðs á herðar honum. Þegar hann læsir fær enginn lokið upp og ljúki hann upp fær enginn læst.
23
Ég rek hann niður sem tjaldhæl á haldgóðan stað og hann hlýtur heiðurssætið í ætt föður síns.
24
Allur þungi föðurættar hans mun hvíla á honum, bæði brum og blöð, smákerin, bæði skálar og krúsir.
25
Á þeim degi, segir Drottinn allsherjar, mun naglinn, sem negldur var fastur á haldgóðan stað, láta undan. Hann losnar og fellur niður og allt, sem á honum hékk, mun brotna því að það hefur Drottinn sagt.
← Chapter 21
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 23 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66