bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 7
Isaiah 7
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 8 →
1
Á dögum Akasar, konungs í Júda, Jótamssonar, Ússíasonar, héldu Resín, konungur í Aram, og Peka Remaljason Ísraelskonungur upp til Jerúsalem til að ráðast á borgina en gátu ekki unnið hana.
2
Þegar húsi Davíðs var tilkynnt að Aramear hefðu náð fótfestu í Efraím skalf hjarta konungs og hjarta þjóðar hans eins og skógartré skjálfa fyrir vindi.
3
Þá sagði Drottinn við Jesaja: „Gakktu með son þinn Sear-Jasúb að efri enda vatnsleiðslunnar úr efri tjörninni, við götuna út á þvottavöllinn, til móts við Akas
4
og segðu við hann: Gættu þín, haltu ró þinni, óttastu ekki. Láttu ekki hugfallast fyrir þessum tveimur hálfbrunnu sprekum, fyrir brennandi reiði Resíns, Arams og sona Remalja.
5
Aram, Efraím og sonur Remalja hafa illt í hyggju gegn þér og segja:
6
Vér skulum fara gegn Júdamönnum, hræða þá og leggja landið undir oss og gera son Tabels að konungi yfir þeim.
7
Þess vegna segir Drottinn Guð: Það skal ekki takast, það skal ekki verða,
8
því að Damaskus er höfuð Arams og Resín er höfuð Damaskus. Innan sextíu og fimm ára verður Efraím gjörsigrað og ekki framar þjóð.
9
Samaría er höfuð Efraíms og sonur Remalja höfuð Samaríu. Standist trú yðar ekki standist þér alls ekki.“
10
Drottinn talaði aftur við Akas og sagði:
11
„Bið þú Drottin, Guð þinn, um tákn, hvort heldur neðst neðan úr undirheimum eða ofan frá hæstu hæðum.“
12
Akas svaraði: „Ég bið einskis því að ég vil ekki freista Drottins.“
13
Þá sagði Jesaja: „Hlýðið nú á, niðjar Davíðs. Finnst yður ekki nóg að reyna á þolinmæði manna? Ætlið þér einnig að reyna á þolinmæði Guðs míns?
14
Þess vegna mun Drottinn sjálfur gefa yður tákn. Sjá, yngismær verður þunguð og fæðir son og lætur hann heita Immanúel.
15
Rjómi og hunang verður fæða hans þar til hann hefur vit á að hafna hinu illa og velja hið góða.
16
Áður en sveinninn hefur lært að hafna hinu illa og velja hið góða verður mannauðn í landi þeirra tveggja konunga sem þú óttast.
17
Drottinn mun senda yfir þig, þjóð þína og fjölskyldu þvílíka daga að aðrir eins dagar hafa ekki komið síðan Efraím skildist frá Júda − hann mun senda Assýríukonung.“
18
Á þeim degi mun Drottinn blístra á flugurnar við ósa Nílar í Egyptalandi og býflugurnar í Assýríu.
19
Þær munu allar koma og setjast að í gljúfrum og hamragiljum, þyrnirunnum og vatnsbólum.
20
Á þeim degi mun Drottinn raka bæði höfuð- og skapahár með rakhníf sem hann leigði handan fljóts − með Assýríukonungi − hann mun jafnvel raka skeggið burt.
21
Á þeim degi mun maður hafa kvígu og tvær ær
22
og þær mjólka svo vel að hann hefur rjóma til matar. Þeir sem eftir verða í landinu munu nærast á rjóma og hunangi.
23
Á þeim degi mun svo fara að alls staðar þar sem áður stóðu þúsund vínviðir, þúsund sikla virði, munu vaxa þyrnar og þistlar.
24
Menn fara þangað með boga og örvar því að landið allt verður þyrnum og þistlum þakið.
25
Og á þau fjöll, sem nú eru erjuð með haka, mun enginn koma af ótta við þyrna og þistla. Þau verða bithagi nauta og niður tröðkuð af sauðfé.
← Chapter 6
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 8 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66