bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 8
Isaiah 8
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 9 →
1
Drottinn sagði við mig: „Fáðu þér stórt spjald og skrifaðu á það með venjulegum griffli: Hraðfengi Skyndirán.
2
Taktu mér traust vitni, Úría prest og Sakaría Jeberekíason.“
3
Síðan nálgaðist ég spákonu og hún varð þunguð og ól son. Þá sagði Drottinn við mig: „Láttu hann heita Hraðfengi Skyndirán
4
því að áður en drengurinn lærir að segja pabbi minn og mamma mín, verður auðurinn frá Damaskus og herfangið frá Samaríu flutt fram fyrir Assýríukonung.“
5
Og enn talaði Drottinn til mín og sagði:
6
Þar sem fólkið fyrirlítur hina straumhægu Sílóalind og guggnar fyrir Resín og syni Remalja
7
lætur Drottinn hið stríða og straumþunga Efrat belja yfir þá, Assýríukonung og allan hans her. Það mun brjótast úr farvegi sínum og flóa yfir alla bakka.
8
Það mun ryðjast inn í Júda, flæða og fossa þar yfir, uns það tekur mönnum undir höku, og þenja vængi sína yfir allt land þitt, svo vítt sem það er, Immanúel.
9
Takið eftir, framandi þjóðir, og skelfist. Hlustið, íbúar fjarlægra landa. Vígbúist og skelfist. Vígbúist og skelfist.
10
Ráðið ráðum yðar, þau verða að engu. Takið ákvörðun, hún fær ekki staðist, því að Guð er með oss.
11
Því að svo mælti Drottinn við mig þegar hönd hans greip mig þéttingsfast og hann varaði mig við að ganga sama veg og þetta fólk:
12
Kallið ekki allt samsæri sem þetta fólk kallar samsæri. Óttist ekki það sem það óttast, skelfist ekki.
13
Drottinn allsherjar sé yður heilagur, hann skuluð þér óttast, hann skuluð þér skelfast.
14
Hann skal verða helgidómur, ásteytingarsteinn og hrösunarhella fyrir bæði ríki Ísraels. Hann mun verða snara og gildra fyrir Jerúsalembúa.
15
Margir þeirra munu hrasa, falla og brotna. Þeir munu festast í snörunni, falla í gildruna.
16
Ég vef saman vitnisburðinum, innsigla kenninguna hjá lærisveinum mínum.
17
Ég bíð Drottins sem byrgir nú auglit sitt fyrir ætt Jakobs, ég vona á hann.
18
Ég og börnin, sem Drottinn hefur gefið mér, erum tákn og viðvörun fyrir Ísrael frá Drottni allsherjar sem býr á Síonarfjalli.
19
Ef sagt er við yður: „Leitið til framliðinna og anda sem hvískra og muldra,“ skuluð þér svara: „Á fólk ekki frekar að leita til Guðs síns? Hvers vegna ættu menn að leita til hinna dauðu vegna hinna lifandi?
20
Leitið til kenningarinnar og vitnisburðarins.“ Hver sem ekki talar þannig mun ekki líta morgunroðann.
21
Hrjáður og hungraður mun hann ráfa um landið. Þegar hungrið sverfur að fyllist hann bræði og formælir konungi sínum og Guði sínum. Hvort sem hann horfir upp
22
eða starir til jarðar sér hann aðeins neyð og dimmu, þrúgandi myrkur.
23
Engin björgun býðst þeim sem er ofurseldur algjörum sorta. Ekki skal myrkur vera í landinu sem fyrr var í nauðum statt. Fyrrum lét hann vansæmd koma yfir Sebúlonsland og Naftalíland en síðar meir mun hann varpa frægð yfir strandveginn, landið handan við Jórdan, Galíleu heiðingjanna.
← Chapter 7
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 9 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66