bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 24
Isaiah 24
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 23
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 25 →
1
Sjá, Drottinn tæmir jörðina og eyðir hana. Hann umhverfir ásjónu hennar og tvístrar íbúunum.
2
Eitt gengur yfir prest og alþýðu, húsbónda og þræl, húsfreyju og ambátt, seljanda og kaupanda, lánardrottin og lánþega, okrara og skuldunaut hans.
3
Jörðin verður gereydd, rænd og rúin öllu, því að Drottinn hefur sagt það.
4
Jörðin fölnar og sölnar, jörðin skrælnar og sölnar, hinir æðstu á jörðinni blikna.
5
Jörðin vanhelgast undir fótum íbúa sinna þar sem þeir hafa óhlýðnast lögunum, sniðgengið boðin, rofið sáttmálann ævarandi.
6
Þess vegna gleypir bölvun jörðina og íbúar hennar verða sekir, því brenna jarðarbúar upp, aðeins örfáir verða eftir.
7
Vínviðurinn fölnar, laufið sölnar, allir sem glöddust stynja.
8
Gleðihljómur trumbunnar hljóðnar, glaumur glaðværra þagnar, gleði gígjunnar linnir.
9
Menn sitja ekki syngjandi að víndrykkju, ölið verður þeim beiskt sem drekka það.
10
Borg glundroðans er brotin, öll hús læst, enginn kemst þar inn.
11
Á strætum er kveinað eftir víni, öll gleði er horfin, fögnuður jarðar flúinn.
12
Auðnin ein er eftir í borginni, borgarhliðið er mölbrotið.
13
Þannig verður á jörðinni, mitt á meðal þjóðanna, eins og þegar ólífutré hefur verið hrist eða við eftirtínslu að loknum vínberjalestri.
14
Þeir hefja upp raust sína og fagna yfir hátign Drottins, úr vestri hrópa þeir hástöfum:
15
„Heiðrið Drottin í austri, nafn Drottins, Guðs Ísraels, á fjarlægum eyjum á hafinu.“
16
Frá ystu mörkum landsins heyrum vér söngva: „Dýrð hinum réttláta.“ Ég hugsaði: Það er úti um mig, úti um mig, vei mér. Svikarar pretta, svikarar pretta stórlega.
17
Geigur, gryfja og gildra ógna þér, jarðarbúi.
18
Sá sem flýr háskann fellur í gryfjuna og sá sem kemst upp úr gryfjunni festist í gildrunni. Flóðgáttir himins opnast og grunnur jarðar mun skjálfa.
19
Jörðin brestur og gnestur, jörðin rofnar og klofnar, jörðin riðar og iðar.
20
Jörðin skjögrar eins og drukkinn maður. Hún skekst til og frá eins og skýli vökumanns. Þar sem afbrot hennar hvíla þungt á henni fellur hún og rís aldrei upp framar.
21
Á þeim degi mun Drottinn refsa her himins á himni og konungum jarðar á jörðu.
22
Þeim verður safnað í gryfju, þeir settir bak við lás og slá og þeim hegnt eftir langa hríð.
23
Fölur máninn roðnar af skömm og glóandi sólin fölnar af smán því að Drottinn allsherjar verður konungur á Síonarfjalli og í Jerúsalem og dýrð hans mun ljóma frammi fyrir öldungum hans.
← Chapter 23
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 25 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66