bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 65
Isaiah 65
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 64
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 66 →
1
Ég lét þá leita svara hjá mér sem ekki spurðu og lét þá finna mig sem ekki leituðu mín. Ég sagði: „Hér er ég, hér er ég,“ við þjóð sem ákallaði ekki nafn mitt.
2
Ég breiddi út hendur mínar dag hvern móti hinni þrjósku og uppreisnargjörnu þjóð sem gengur veg sem ekki er góður og fer að eigin geðþótta,
3
móti þjóð sem reitir mig sífellt til reiði fyrir augliti mínu. Þeir fórna í görðum og brenna reykelsi á tígulsteinum,
4
hafast við í gröfum, dveljast um nætur meðal kletta, eta svínakjöt og hafa súpu af óhreinu kjöti í pottum sínum.
5
Þeir segja: „Vertu þar sem þú ert, komdu ekki nærri mér því að ég er of helgur fyrir þig.“ Slíkir menn eru reykur í nösum mínum, eldur sem brennur liðlangan daginn.
6
Þetta er vissulega skráð fyrir augliti mínu, ég mun ekki þagna fyrr en ég hef endurgoldið þeim og varpað gjaldinu í skaut þeirra,
7
bæði fyrir sekt þeirra og sekt feðra þeirra, segir Drottinn. Þeir brenndu reykelsi á fjöllum og smánuðu mig á hæðunum. Ég mun gjalda þeim eftir verkum þeirra og endurgjalda í skaut þeirra.
8
Svo segir Drottinn: Þegar menn finna safa í vínberi segja þeir: „Skemmdu það ekki því að í því er blessun.“ Hið sama mun ég gera fyrir þjóna mína til að tortíma þeim ekki öllum.
9
Ég gef Jakobi niðja og Júda erfingja að fjöllum mínum, þeir sem ég hef valið skulu taka þau til eignar og þjónar mínir búa þar.
10
Saron verður beitiland fyrir fé og Akordalur hvíldarstaður nauta fyrir þjóð mína sem leitar svara hjá mér.
11
En yður sem hafið yfirgefið Drottin og gleymt mínu heilaga fjalli, yður sem búið Gað borð og skenkið Mení bikar,
12
yður ofursel ég sverðinu. Þér verðið allir að krjúpa til aftöku því að ég hrópaði en þér svöruðuð ekki, ég talaði en þér hlustuðuð ekki heldur gerðuð það sem var illt í augum mínum og völduð það sem mér þóknaðist ekki.
13
Þess vegna segir Drottinn Guð svo: Þjónar mínir munu eta en yður mun hungra, þjónar mínir munu drekka en yður mun þyrsta, þjónar mínir munu gleðjast en von yðar mun bregðast.
14
Þjónar mínir munu hrópa af glöðu hjarta en þér munuð kveina af kvöldu hjarta og hljóða af angist.
15
Þér skuluð ljá mínum útvöldu nöfn yðar og þeir munu nota þau sem formælingu: „Drottinn Guð drepi þig,“ en þjónum sínum gefur hann nýtt nafn.
16
Sá sem óskar sér blessunar í landinu óski sér blessunar í nafni hins trúfasta Guðs og hver sem vinnur eið í landinu, hann vinni eið í nafni hins trúfasta Guðs þar sem fyrri þrengingar eru gleymdar og huldar fyrir augum mínum.
17
Sjá, ég skapa nýjan himin og nýja jörð og hins fyrra verður ekki minnst framar og það skal engum í hug koma.
18
Gleðjist og fagnið ævinlega yfir því sem ég skapa því sjá, ég geri Jerúsalem að fögnuði og íbúa hennar að gleði.
19
Ég mun gleðjast yfir Jerúsalem og fagna yfir þjóð minni, þar mun aldrei framar heyrast grátur og kvein.
20
Þar verða ekki framar börn sem aðeins lifa fáa daga eða öldungur sem ekki nær fullum aldri en sá sem deyr tíræður telst ungur og sá sem ekki nær tíræðu verður talinn bölvaður.
21
Menn munu reisa hús og búa í þeim, planta víngarða og neyta ávaxta þeirra.
22
Menn munu ekki reisa hús sem annar býr í, ekki planta og annar neyta en þjóð mín mun ná aldri trjánna og mínir útvöldu njóta ávaxta iðju sinnar.
23
Þeir munu ekki erfiða til einskis og ekki eignast börn sem deyja fyrir tímann því að þeir eru niðjar þeirra sem Drottinn hefur blessað og börn þeirra með þeim.
24
Áður en þeir hrópa mun ég svara og áður en þeir hafa orðinu sleppt mun ég bænheyra.
25
Úlfur og lamb verða saman á beit, ljón mun bíta gras eins og naut og mold verða fæða höggormsins. Hvergi á mínu heilaga fjalli munu þau vinna mein né gera skaða, segir Drottinn.
← Chapter 64
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 66 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66