bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 33
Isaiah 33
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 34 →
1
Vei þér, eyðandi, sem sjálfum hefur ekki verið eytt, vei þér, svikari, sem enginn hefur svikið. Þegar þú hefur lokið við að eyða verður þér eytt og þegar þú hættir að svíkja verður þú sjálfur svikinn.
2
Drottinn, ver oss náðugur, vér vonum á þig. Ver þú styrkur vor á hverjum morgni og hjálpræði vort á neyðarinnar tíma.
3
Fyrir hinum dynjandi gný flýja þjóðirnar, þegar þú ríst upp tvístrast lýðir.
4
Þá verður herfang tekið eins og af jarðvargi, menn munu steypast yfir það eins og engisprettusveimur.
5
Hár er Drottinn því að hann býr á hæðum, hann fyllir Síon rétti og réttlæti.
6
Örugga tíma skalt þú hljóta, auð hjálpræðis, vísdóms og þekkingar. Ótti Drottins er auður þinn.
7
Hermenn hrópa á strætum, friðarboðar gráta beisklega.
8
Strætin eru auð, enginn fer um göturnar. Hann rauf sáttmálann, hafnaði vitnum hans, virðir engan neins.
9
Jörðin skrælnar og visnar, Líbanon blygðast sín og sýkist, Saron er eins og eyðimörk, Basan og Karmel fella laufið,
10
Nú rís ég upp, segir Drottinn, nú stend ég á fætur, nú er ég hátt upp hafinn.
11
Þér gangið með hey en fæðið hálm, andgustur yðar er eldur sem gleypir yður sjálfa.
12
Þá verða þjóðirnar brenndar til ösku, höggnar eins og þyrnar og brenndar í eldi.
13
Þér, sem fjarlægir eruð, heyrið um verk mín, þér, sem nálægir eruð, viðurkennið mátt minn.
14
Syndararnir á Síon nötra, skjálfti grípur guðlastara. „Hver af oss getur leitað skjóls hjá eyðandi eldi, hver af oss leitað skjóls í eilífum bruna?“
15
Sá sem lifir í réttvísi og talar sannleika, sá sem hafnar gróða sem fékkst með ofríki, sem bandar hendi gegn mútum í stað þess að þiggja þær, sem heldur fyrir eyrun til að heyra ekki ráðagerð um morð og lokar augunum til að sjá ekkert illt,
16
hann mun búa á hæðum. Hamraborgir verða vígi hans. Honum verður séð fyrir brauði og hann mun aldrei skorta vatn.
17
Með eigin augum muntu sjá konunginn í ljóma sínum og sjá víðáttumikið land.
18
Með sjálfum þér muntu hugleiða skelfinguna: Hvar er sá sem telur? Hvar er sá sem vó? Hvar er sá sem telur turnana?
19
Þú munt ekki framar sjá hina ofstopafullu þjóð sem talar óljóst mál sem ekki skilst, stamar á tungu sem enginn skilur.
20
Líttu á Síon, borg hátíða vorra, augu þín munu sjá Jerúsalem, friðsæl heimkynni, tjaldið sem ekki verður hróflað við, hælum þess aldrei kippt upp og ekkert af stögum þess slitið.
21
En þar verður hinn voldugi Drottinn með oss, þar sem fljót og breið vatnsföll renna en engin borðróin skip fara um og engin skrautleg skip sigla.
22
Því að Drottinn er dómari vor, Drottinn er löggjafi vor, Drottinn er konungur vor, hann frelsar oss.
23
Stögin eru slök, halda siglunni ekki í skorðum, þenja ekki seglið. Þá verður miklu herfangi skipt og jafnvel lamaðir taka ránsfeng.
24
Enginn borgarbúi mun segja: „Ég er veikur.“ Syndir fólksins, sem þar býr, hafa verið fyrirgefnar.
← Chapter 32
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 34 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66