bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 57
Isaiah 57
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 56
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 58 →
1
Hinn réttláti ferst en enginn tekur það nærri sér, hinum guðhræddu er svipt burt en enginn gefur því gaum. Vegna illskunnar er hinum réttláta svipt burt,
2
hann gengur inn til friðarins. Þeir munu liggja á hvílum sínum sem gengu beina braut.
3
En þér, seiðkonusynir, komið hingað, börn hórkarls og skækju.
4
Að hverjum skopist þér, gegn hverjum glennið þér upp ginið og rekið út tunguna? Eruð þér ekki afsprengi syndarinnar, afkvæmi lyginnar?
5
Þér brennið af girnd við eikurnar, undir hverju laufguðu tré, slátrið börnum í dölunum, niðri í klettagjánum.
6
Með sléttum steinum í árfarvegi áttu hlut, þeir, já, þeir eru hlutskipti þitt. Þú dreyptir þeim dreypifórnir, færðir þeim kornfórn. Á ég að una þessu?
7
Á háu og gnæfandi fjalli bjóstu hvílu þína, þangað hélstu upp til að færa sláturfórn.
8
Á bak við hurð og dyrastaf settir þú tákn þitt, fráhverf mér flettir þú ofan af hvílunni, steigst upp í og rýmkaðir þar til. Þú keyptir þér hvílunauta sem þú girntist, horfðir á nekt þeirra.
9
Þú fórst með olíu til Meleks og smurðir þig ríkulega með ilmsmyrslum, þú sendir sendiboða þína langar leiðir, allt niður til heljar.
10
Þú þreyttist af mörgum ferðum þínum en sagðir þó ekki: „Ég gefst upp.“ Þú fannst að hönd þín styrktist, þess vegna örmagnaðist þú ekki.
11
Hver vakti þér beyg, hver ugg þar sem þú brást mér, mundir ekki eftir mér og hirtir ekki um mig? Þagði ég ekki í óratíma en þú óttaðist mig ekki?
12
Ég skal segja frá réttlæti þínu og verkum en þau verða þér ekki að liði.
13
Lát skurðgoðaflokk þinn bjarga þér þegar þú hrópar á hjálp. Stormurinn ber hann burt, vindurinn tekur hann en sá sem leitar hælis hjá mér mun erfa landið og taka mitt heilaga fjall til eignar.
14
Einhver segir: Leggið braut, leggið braut, gerið veginn greiðan, ryðjið hindrunum úr vegi þjóðar minnar.
15
Því að svo segir hinn hái og upphafni sem ríkir ævinlega og ber nafnið Heilagur: Ég bý á háum og helgum stað en einnig hjá iðrunarfullum og þjökuðum í anda til að glæða þrótt hinna lítillátu og styrkja hjarta þjakaðra.
16
Ég þreyti ekki deilur eilíflega og reiðist ekki ævinlega, annars mundi kjarkur þeirra bila frammi fyrir mér og lífsandinn sem ég skapaði.
17
Ég reiddist sökum syndsamlegrar græðgi þeirra, sló þá, huldi mig og var reiður en þeir voru mér fráhverfir og héldu þann veg sem þá lysti.
18
Ég sá hvaða veg þeir gengu en vildi lækna þá og leiða og veita syrgjendum þeirra huggun.
19
Ég skapa ávöxt varanna: Friður, friður þeim sem er fjarri og þeim sem er nærri, segir Drottinn. Ég lækna þá.
20
En óguðlegir eru sem ólgusjór því að enginn lægir hann og öldur hans róta upp aur og leðju,
21
óguðlegir hljóta engan frið, segir Guð minn.
← Chapter 56
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 58 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66