bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 58
Isaiah 58
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 57
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 59 →
1
Kalla þú fullum hálsi og dragðu ekki af, hef upp rödd þína eins og hafurshorn og segðu þjóð minni frá afbrotum hennar og niðjum Jakobs frá syndum þeirra.
2
Þeir leita svara hjá mér dag eftir dag því að þeir vilja þekkja vegi mína. Eins og þjóð sem iðkar réttlæti og víkur ekki frá boðum Guðs síns krefja þeir mig um réttan dóm og vilja að Guð nálgist þá.
3
Hvers vegna föstum vér en þú sérð það ekki, þjökum oss en þú tekur ekki eftir því? Daginn, sem þér fastið, stundið þér verslun og haldið verkamönnum yðar að verki.
4
Þér fastið til að þræta og deila og sláið með krepptum hnefa. Fastið ekki eins og í dag ef rödd yðar á að heyrast í upphæðum.
5
Er sú fasta sem mér líkar sá dagur er menn þjaka sig, láta höfuðið hanga eins og sef og leggjast í sekk og ösku? Kallar þú slíkt föstu og dag sem Drottni geðjast?
6
Nei, sú fasta sem mér líkar er að leysa fjötra rangsleitninnar, láta rakna bönd oksins, gefa frjálsa hina hrjáðu og sundurbrjóta sérhvert ok,
7
það er, að þú miðlir hinum hungruðu af brauði þínu, hýsir bágstadda, hælislausa menn og ef þú sérð klæðlausan mann, að þú klæðir hann og firrist ekki þann sem er hold þitt og blóð.
8
Þá brýst ljós þitt fram sem morgunroði og sár þín gróa skjótt, réttlæti þitt fer fyrir þér en dýrð Drottins fylgir eftir.
9
Þá muntu kalla og Drottinn svara, biðja um hjálp og hann mun segja: „Hér er ég.“ Ef þú hættir allri undirokun þín á meðal, hættir hæðnisbendingum og rógi,
10
réttir hungruðum það sem þig langar sjálfan í og seður þann sem bágt á, þá rennur ljós þitt upp í myrkrinu og niðdimman kringum þig verður sem hábjartur dagur.
11
Drottinn mun stöðugt leiða þig, seðja þig í skrælnuðu landi og styrkja bein þín. Þú munt líkjast vökvuðum garði, uppsprettu sem aldrei þrýtur.
12
Menn þínir munu endurreisa hinar fornu rústir, þú munt reisa við undirstöður fyrri kynslóða og þú verður nefndur: múrskarðafyllir, sá sem reisir byggð úr rústum.
13
Ef þú varast að vanhelga hvíldardaginn, varast að gegna störfum þínum á helgum degi mínum, ef þú kallar hvíldardaginn fagnaðardag, dag helgaðan Drottni, gleðidag, og heiðrar hann með því að hafast ekkert að og sinnir ekki hugðarefnum þínum eða masar,
14
muntu gleðjast yfir Drottni. Þá mun ég láta þig ríða yfir hæðir landsins og njóta arfsins eftir föður þinn, Jakob, því að munnur Drottins hefur talað það.
← Chapter 57
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 59 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66