bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 45
Isaiah 45
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 44
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 46 →
1
Svo segir Drottinn við sinn smurða, Kýrus, sem ég hef tekið í hægri höndina á til að leggja undir hann þjóðir, ræna konunga vopnum til að opna hlið fyrir honum svo að borgarhlið verði ekki lokuð.
2
Ég geng sjálfur á undan þér og jafna fjöllin. Ég mun brjóta eirhliðin og mölva slagbranda úr járni,
3
gefa þér hulda fjársjóði og falin auðæfi svo að þú skiljir að ég er Drottinn sem kalla þig með nafni, ég, Guð Ísraels.
4
Vegna Jakobs, þjóns míns, og Ísraels, míns útvalda, kallaði ég þig með nafni, gaf þér sæmdarheiti þótt þú þekktir mig ekki.
5
Ég er Drottinn og enginn annar, enginn er Guð nema ég. Ég bjó þig hertygjum þótt þú þekktir mig ekki
6
svo að bæði í austri og vestri skilji menn að enginn er Guð nema ég.
7
Ég mynda ljós og skapa myrkur, ég veiti heill og veld óhamingju. Ég er Drottinn sem gerir allt þetta.
8
Drjúpið þér, himnar, að ofan, skýin láti réttlæti niður streyma, jörðin opnist og láti heill spretta fram og réttlætið blómgast. Ég er Drottinn sem skapar þetta.
9
Vei þeim sem deilir við skapara sinn, þeim sem er leirbrot innan um önnur leirbrot jarðar. Getur leirinn spurt þann sem mótar hann: „Hvað ert þú að gera?“ eða verk hans sagt: „Hann hefur engar hendur.“
10
Vei þeim sem spyr föður sinn: „Hvað munt þú fá getið?“ eða konuna: „Hvað ætli þú getir fætt?“
11
Svo segir Drottinn, Hinn heilagi Ísraels og skapari hans: Ætlið þér að kvarta undan sonum mínum og gefa mér fyrirmæli um handaverk mín?
12
Ég gerði jörðina og skapaði mennina á henni, ég þandi út himininn með eigin höndum og ég stýri öllum hans her.
13
Ég vakti hann í réttlæti og geri brautir hans beinar. Hann mun endurreisa borg mína og láta útlaga mína lausa án lausnargjalds eða gjafa, segir Drottinn allsherjar.
14
Svo segir Drottinn: Auður Egyptalands og gróði Kúss og hinir hávöxnu Sabear munu koma til þín og verða þín eign. Þeir munu fylgja þér í fjötrum og falla fram fyrir þér og játa: „Hjá þér einum er Guð og enginn annar er til, enginn annar Guð.“
15
Sannarlega ert þú Guð sem hylur þig, Guð Ísraels, frelsari.
16
Allir verða þeir að háði og spotti, allir skurðgoðasmiðirnir ganga burt með skömm.
17
En Drottinn mun bjarga Ísrael og sú frelsun varir að eilífu. Þér verðið hvorki til skammar né hafðir oftar að spotti, aldrei að eilífu.
18
Já, svo segir Drottinn, skapari himinsins, hann einn er Guð, hann mótaði jörðina og bjó hana til, hann grundvallaði hana, hann skapaði hana ekki sem auðn heldur gerði hana byggilega: Ég er Drottinn og enginn annar er til.
19
Ég hef ekki talað í leynum, ekki einhvers staðar í myrku landi, ég hef ekki sagt við niðja Jakobs: „Leitið mín í tóminu.“ Ég er Drottinn og segi það sem satt er, skýri frá því sem rétt er.
20
Safnist saman og komið, gangið nær, þér sem komust undan af þjóðunum. Þér sem burðist með trémyndir skiljið ekkert, tilbiðjið guð sem getur ekki hjálpað.
21
Gerið kunnugt og leggið það fyrir, já, ráðgist hver við annan: Hver boðaði þetta frá öndverðu, skýrði frá því fyrir löngu? Var það ekki ég, Drottinn? Því að enginn er Guð nema ég, réttlátur Guð og frelsari er enginn nema ég.
22
Hverfið aftur til mín og látið frelsast, gjörvöll endimörk jarðar, því að ég er Guð og enginn annar.
23
Ég hef svarið við sjálfan mig: Af munni mínum er sannleikur út genginn, orð sem ekki snýr aftur. Fyrir mér skal sérhvert kné beygja sig og sérhver tunga sverja við mig.
24
Sagt var um mig: Hjá Drottni einum er réttlæti og styrkur. Allir sem hamast af heift gegn honum munu koma fyrir hann og blygðast sín.
25
En hjá Drottni hljóta allir niðjar Ísraels réttlæti og fagna.
← Chapter 44
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 46 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66