bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 42
Isaiah 42
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 41
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 43 →
1
Sjá þjón minn sem ég styð, minn útvalda sem ég hef velþóknun á. Ég legg anda minn yfir hann, hann mun færa þjóðunum réttlæti.
2
Hann kallar ekki og hrópar ekki og lætur ekki heyra rödd sína á strætunum.
3
Brákaðan reyrinn brýtur hann ekki sundur og dapran hörkveik slekkur hann ekki. Í trúfesti kemur hann rétti á.
4
Hann þreytist ekki og gefst ekki upp uns hann hefur grundvallað rétt á jörðu og fjarlæg eylönd bíða boðskapar hans.
5
Svo segir Drottinn Guð sem skapaði himininn og þandi hann út, sem breiddi út jörðina með öllu sem á henni vex, sá er andardrátt gaf jarðarbúum og lífsanda þeim sem á jörðinni ganga:
6
Ég, Drottinn, kallaði þig í réttlæti og held í hönd þína. Ég móta þig, geri þig að sáttmála fyrir þjóðirnar og að ljósi fyrir lýðina
7
til að opna hin blindu augu, leiða fanga úr varðhaldi og úr dýflissu þá sem í myrkri sitja.
8
Ég er Drottinn, það er nafn mitt, og dýrð mína gef ég ekki öðrum né lof mitt úthöggnum líkneskjum.
9
Sjá, hið fyrra er fram komið en nú boða ég nýtt og áður en það vex upp kunngjöri ég það.
10
Syngið Drottni nýjan söng, syngið lof hans frá endimörkum jarðar, hafið fagni og allt sem í því er, fjarlægar eyjar og íbúar þeirra.
11
Eyðimörkin og borgir hennar hrópi og þorpin þar sem Kedar býr, íbúar Sela syngi af gleði og hrópi frá fjallatindunum.
12
Þeir gefi Drottni dýrðina og kunngjöri lof hans á fjarlægum eyjum.
13
Drottinn heldur af stað sem hetja, glæðir hugmóð eins og bardagamaður, hann lýstur upp herópi og ber sigurorð af fjandmönnum sínum.
14
Ég hef þagað frá öndverðu, verið hljóður og ekki hafst að. Nú mun ég hljóða eins og kona í barnsnauð, stynja og standa á öndinni.
15
Ég mun láta fjöll og hálsa skrælna og svíða allan gróður á þeim, gera árnar að þurrlendi og tjarnirnar þurrka ég upp.
16
Ég leiði blinda um braut sem þeir rata ekki, læt þá ganga vegi sem þeir þekkja ekki, ég geri myrkrið fyrir augum þeirra að birtu og ójöfnur sléttar. Þessi verk vinn ég og læt það ekki ógert.
17
Þeir sem treysta skurðgoðunum skulu hörfa og verða sér til skammar, þeir sem segja við steypt líkneski: „Þér eruð guðir vorir.“
18
Hlustið, þér heyrnarlausir, lítið upp, blindir, svo að þér sjáið.
19
Hver er blindur ef ekki þjónn minn og heyrnarlaus ef ekki sendiboði minn? Hver er svo blindur sem boðberi minn eða svo blindur sem þjónn Drottins?
20
Margt sér hann en gefur því engan gaum, hefur eyrun opin en hlustar ekki.
21
Vegna réttlætis síns þóknaðist Drottni að gera lögmál sitt mikið og vegsamlegt.
22
En þeir eru rænd og rupluð þjóð, allir fjötraðir í dýflissum eða fangelsum, þeir urðu herfang og enginn bjargaði, ránsfengur og enginn segir: „Látið þá lausa.“
23
Hver af yður vill hlýða á þetta, gefa því gaum og hlusta vegna framtíðarinnar?
24
Hver ofurseldi Jakob ránsmönnum og Ísrael þjófum? Var það ekki Drottinn sem vér syndguðum gegn? Þeir vildu ekki ganga á vegum hans og ekki hlýða lögum hans.
25
Þess vegna jós hann glóandi reiði sinni og stríðsógnum yfir þá. Reiðin brann umhverfis þá en þeir skildu það ekki og hún sveið þá en þeir gáfu því ekki gaum.
← Chapter 41
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 43 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66