bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 2
Isaiah 2
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 3 →
1
Þetta er það sem Jesaja Amotssyni vitraðist um Júda og Jerúsalem.
2
Það skal verða á komandi dögum að fjallið, sem hús Drottins stendur á, bifast ekki, það ber yfir hæstu fjallstinda og gnæfir yfir allar hæðir. Þangað munu allar þjóðir streyma
3
og margir lýðir koma og segja: „Komið, göngum upp á fjall Drottins, til húss Jakobs Guðs svo að hann vísi oss vegu sína og vér getum gengið brautir hans.“ Því að fyrirmæli koma frá Síon, orð Drottins frá Jerúsalem.
4
Og hann mun dæma meðal lýðanna og skera úr málum margra þjóða. Og þær munu smíða plógjárn úr sverðum sínum og sniðla úr spjótum sínum. Engin þjóð skal sverð reiða að annarri þjóð og ekki skulu þær temja sér hernað framar.
5
Ættmenn Jakobs, komið, göngum í ljósi Drottins.
6
Þú hefur hafnað ætt Jakobs, lýð þínum, því að hún er uppfull af austrænni hjátrú og spásögnum eins og Filistear iðka og handsalar samning við útlendinga.
7
Land þeirra er fullt af silfri og gulli og fjársjóðir þeirra eru óþrjótandi. Land þeirra er fullt af hestum og hervagnar þeirra óteljandi.
8
Land þeirra er fullt af skurðgoðum, menn falla fram fyrir eigin handaverkum, fyrir því sem fingur þeirra hafa gert.
9
Þá var maðurinn beygður og mannkindin auðmýkt. Fyrirgef þeim eigi.
10
Gakk inn í bergið, fel þig í jörðu fyrir ógn Drottins og ljóma hátignar hans.
11
Hrokafull augu manna munu auðmýkt og dramb þeirra lægt. Drottinn einn mun upphafinn á þeim degi.
12
Dagur Drottins herskaranna kemur yfir allt dramblátt og hrokafullt, yfir allt sem gnæfir hátt,
13
yfir öll sedrustré á Líbanon, há og gnæfandi, og allar Basanseikur,
14
yfir öll gnæfandi fjöll og yfir allar háar hæðir,
15
yfir alla háreista turna, yfir alla ókleifa borgarmúra,
16
yfir öll Tarsisskip, yfir öll skip hlaðin glysi.
17
Þá verður hroki mannanna beygður og dramb þeirra lægt. Drottinn einn mun upphafinn á þeim degi.
18
Skurðgoðin munu hverfa með öllu.
19
Flýið í klettahella og í gjótur í jörðinni fyrir ógn Drottins og ljóma hátignar hans þegar hann rís upp og skelfir jörðina.
20
Á þeim degi varpa menn fyrir moldvörpur og leðurblökur silfurgoðum sínum og gullgoðum sem þeir gerðu sér til að tilbiðja.
21
Þeir munu leita inn í klettaskúta og hamraskorur undan ógn Drottins og ljóma hátignar hans þegar hann rís upp og skelfir jörðina.
22
Hættið að treysta mönnum, hverfulan lífsanda hafa þeir í nösum, hvers virði er hann?
← Chapter 1
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 3 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66