bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 49
Isaiah 49
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 48
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 50 →
1
Hlýðið á mig, eylönd, hyggið að, fjarlægu þjóðir. Drottinn hefur kallað mig allt frá móðurlífi, nefnt mig með nafni frá því ég var í móðurkviði.
2
Hann gerði munn minn sem beitt sverð og huldi mig í skugga handar sinnar. Hann gerði mig að hvassri ör og faldi mig í örvamæli sínum.
3
Hann sagði við mig: „Þú ert þjónn minn, Ísrael, ég læt þig birta dýrð mína.“
4
En ég svaraði: „Ég hef erfiðað til ónýtis, sóað kröftum mínum til einskis og út í vindinn en réttur minn er hjá Drottni og laun mín hjá Guði mínum.“
5
En nú segir Drottinn, hann sem myndaði mig í móðurlífi til að vera þjónn sinn, til að ég sneri Jakobi aftur til sín og til að Ísrael yrði safnað saman hjá honum. Ég er dýrmætur í augum Drottins og Guð minn varð minn styrkur.
6
Hann segir: Það er of lítið að þú sért þjónn minn til að endurreisa ættbálka Jakobs og leiða þá aftur heim sem varðveist hafa af Ísrael. Ég geri þig að ljósi fyrir þjóðirnar svo að hjálpræði mitt nái allt til endimarka jarðar.
7
Svo segir Drottinn, lausnari Ísraels, hans heilagi, við hinn fyrirlitna sem fólk hefur andstyggð á, við þjón harðstjóranna: Konungar munu sjá þetta og rísa upp, höfðingjar falla fram vegna Drottins sem er trúr, vegna Hins heilaga Ísraels sem valdi þig.
8
Svo segir Drottinn: Á tíma náðarinnar bænheyri ég þig, á degi hjálpræðisins hjálpa ég þér, ég myndaði þig og gerði þig að sáttmála fyrir þjóðina til þess að reisa við landið og úthluta eyddum erfðalöndum,
9
til að segja við hina fjötruðu: „Gangið út,“ og við þá sem í myrkri sitja: „Komið fram í dagsbirtuna.“ Á öllum fjöllum verða þeir á beit og finna haglendi á hverri gróðurvana hæð.
10
Þá mun hvorki hungra né þyrsta og hvorki mun breyskja né sólarhiti vinna þeim mein því að hann sem miskunnar þeim vísar þeim veg og leiðir þá að uppsprettulindum.
11
Ég mun ryðja veg um öll mín fjöll og breiðstræti munu liggja um hæðirnar.
12
Sjáið, þeir koma langt að, ýmist úr norðri eða vestri eða frá landi Seveníta.
13
Lofsyngið himnar, fagna þú jörð, þér fjöll, hefjið gleðisöng því að Drottinn hughreystir þjóð sína og sýnir miskunn sínum þjáðu.
14
En Síon segir: „Drottinn hefur yfirgefið mig, Guð hefur gleymt mér.“
15
Hvort fær kona gleymt brjóstbarni sínu að hún miskunni eigi lífsafkvæmi sínu? Og þó að þær gætu gleymt þá gleymi ég þér samt ekki.
16
Ég hef rist þig í lófa mér, múra þína hef ég sífellt fyrir augum.
17
Þeir sem endurreisa þig koma í skyndi en þeir sem rifu þig niður og eyddu þér hurfu á braut.
18
Hef upp augu þín og litast um, allir safnast þeir saman og koma til þín. Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn: Þú munt bera þá alla sem skart og skreyta þig með þeim sem brúður.
19
Rústir þínar, tóftir og eydda landið verður nú of þröngt fyrir íbúana, þeir sem ætluðu að gereyða þér eru víðs fjarri.
20
Börnin, sem þú eignaðist, munu segja við þig: „Hér er of þröngt um mig, færðu þig svo að ég geti komið mér fyrir.“
21
Þú spyrð sjálfa þig: „Hver ól mér þessi börn? Sjálf var ég barnlaus og óbyrja, útlæg og brottrekin. Hver fóstraði þessi börn? Ég var ein eftir, hvaðan koma þau?“
22
Svo segir Drottinn Guð: Ég bendi þjóðunum með hendi minni, reisi gunnfána minn fyrir lýðina og þeir koma með syni þína í fanginu og bera dætur þínar á öxlum sér.
23
Konungar munu gæta barna þinna og drottningar þeirra fóstra þau fyrir þig. Þau munu falla jarðar, fram á ásjónur sínar fyrir þér og sleikja rykið af fótum þér. Þá muntu komast að raun um að ég er Drottinn og að þeir sem á mig vona verða ekki til skammar.
24
Verður hetja svipt herfangi eða fanga bjargað frá ofbeldismanni?
25
Svo segir Drottinn: Jafnvel hetja verður svipt fanga sínum og ofbeldismaðurinn herfangi. Ég mun sjálfur berjast gegn þeim sem berst gegn þér og sjálfur mun ég frelsa syni þína.
26
Ég mun láta þá sem kúga þig eta eigið hold og þeir munu verða ölvaðir af eigin blóði eins og af víni. Allt hold mun þá komast að raun um að ég er Drottinn, frelsari þinn, og Hinn voldugi Jakobs er lausnari þinn.
← Chapter 48
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 50 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66