bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 34
Isaiah 34
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 33
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 35 →
1
Gangið nær, þjóðir, svo að þér heyrið, hlýðið á, lýðir. Jörðin heyri og allt sem á henni er, heimurinn og allt sem í honum býr.
2
Drottinn er reiður öllum þjóðum, ofsareiður öllum þeirra her. Hann hefur helgað þær banni, framselt þær til slátrunar.
3
Vegnum mönnum þeirra er burt kastað, daun leggur af náum þeirra, fjöllin fljóta í blóði þeirra.
4
Allur himinsins her leysist upp og himinninn vefst saman eins og bókfell og allur her hans bliknar eins og lauf á vínviði visnar og ávöxtur skrælnar á fíkjutré.
5
Sverð mitt birtist á himni, nú lýstur því niður á Edóm til að fullnægja dóminum yfir þjóðinni sem ég hef helgað banni.
6
Sverð Drottins er alblóðugt, löðrandi af feiti, af blóði lamba og geithafra og nýrnamör hrúta. Því að Drottinn heldur fórnarveislu í Bosra, mikla slátrun í Edóm.
7
Þá falla villinaut ásamt þeim, ungneyti og uxar. Land þeirra verður mettað blóði, jarðvegurinn blandaður feiti.
8
Því að þetta er hefndardagur Drottins, ár endurgjaldsins til að reka réttar Síonar.
9
Lækir Edóms verða að biki, jarðvegurinn að brennisteini, land hans breytist í brennandi bik
10
sem slokknar hvorki dag né nótt og reyk leggur upp af um aldur og ævi. Landið mun liggja í eyði frá kyni til kyns, frá eilífð til eilífðar mun enginn fara þar um.
11
Ugla og broddgöltur munu slá eign sinni á það, náttugla og hrafn munu setjast þar að. Drottinn mældi það með mælivað upplausnar og mælilóði auðnar.
12
Þar verður enginn konungur hylltur framar, engir höfðingjar verða þar til.
13
Þyrnar munu spretta í höllunum, netlur og þistlar í virkjunum. Landið verður bæli sjakala, dvalarstaður strútfugla.
14
Urðarkettir og sjakalar munu koma þar saman og geitapúkar munu mætast þar. Þar staldrar Lilít einnig við og finnur þar hvíldarstað.
15
Naðran á sér þar hreiður, hún verpir þar, liggur á og klekur í skugganum. Þar munu gammar safnast saman hver hjá öðrum.
16
Leitið í bók Drottins og lesið: Ekkert þeirra mun vanta, ekkert þeirra saknar annars því að munnur Drottins hefur boðið þetta, andi hans hefur sjálfur stefnt þeim saman.
17
Hann hefur varpað hlutkesti fyrir þau, með eigin hendi hefur hann skipt landinu milli þeirra með mælivað: Þau munu eiga það um aldur og ævi og búa þar frá einni kynslóð til annarrar.
← Chapter 33
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 35 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66