bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 29
Isaiah 29
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 28
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 30 →
1
Vei þér, Aríel, Aríel, borgin þar sem Davíð sló upp herbúðum. Bætið ári við ár, látið hátíðirnar fara sinn hring
2
en ég mun þrengja að Aríel og þar verður hryggð og harmakvein. Hún verður mér eins og brennifórnaraltari.
3
Ég mun setja herbúðir gegn þér, þrengja að þér með árásarvirkjum og reisa turna gegn þér.
4
Fallin muntu tala frá jörðinni, orð þín berast hálfkæfð upp úr moldinni, rödd þín sem draugsrödd upp úr jörðinni og raust þín sem hvískur úr moldinni.
5
Þá verður mergð þinna drambsömu eins og ryk og mergð ofbeldismanna þinna eins og fjúkandi hismi. Skyndilega, á augabragði,
6
kemur refsing frá Drottni allsherjar með þrumum, jarðskjálfta og miklum gný, fellibyl, stormi og eyðandi eldstungum.
7
Eins og í draumsýn um nótt, þannig mun fara fyrir allri þjóðamergðinni sem herjar á Aríel, sem ræðst á hana, reisir virki gegn henni og þrengir að henni.
8
Eins og þegar hungraðan mann dreymir að hann eti en vaknar svangur sem fyrr, eins og þegar þyrstan mann dreymir að hann drekki en vaknar örmagna, þyrstur sem fyrr, þannig fer fyrir allri þjóðamergðinni sem herjar á Síonarfjall.
9
Fallið í stafi og undrist, starið yður blinda. Gerist drukknir, þó ekki af víni. Reikið, þó ekki af öli.
10
Því að Drottinn hefur hellt yfir yður anda svefnhöfgi, lokið augum yðar, spámenn, hyljið höfuð yðar, sjáendur.
11
Yður var sérhver opinberun eins og orð í innsiglaðri bók: Sé hún fengin þeim sem kann að lesa og sagt við hann: „Lestu þetta,“ þá svarar hann: „Ég get það ekki því að bókin er innsigluð.“
12
En sé bókin fengin þeim sem kann ekki að lesa og sagt við hann: „Lestu þetta,“ svarar hann: „Ég er ólæs.“
13
Drottinn segir: Þetta fólk nálgast mig með munni sínum og heiðrar mig með vörum sínum en hjarta þess er mér fjarri og guðsótti þess er utanaðlærðar mannasetningar.
14
Þess vegna mun ég enn fara undarlega með þetta fólk, undarlega og undursamlega. Speki spekinga þess hverfi og hyggindi hyggindamannanna fari í felur.
15
Vei þeim sem grafa djúpt til að hylja áform sín fyrir Drottni og vinna verk sín í myrkri og hugsa: „Hver sér oss, hver veit um oss?“
16
Hvílík fásinna. Skal leggja að jöfnu leirinn og leirkerasmiðinn? Getur verkið sagt um þann sem vann það: „Hann hefur ekki búið mig til?“ Getur það sem var mótað sagt um þann sem mótaði: „Hann kann ekki til verka“?
17
Er ekki skammt þar til Líbanon verður að aldingarði og Karmel talið skóglendi?
18
Á þeim degi munu daufir heyra orð lesin af bók og augu blindra sjá þrátt fyrir skugga og myrkur.
19
Þá mun gleði auðmjúkra aukast yfir Drottni og hinir fátækustu meðal manna munu fagna yfir Hinum heilaga Ísraels.
20
Kúgarinn verður ekki lengur til, skrumarinn líður undir lok, öllum, sem hyggja á illt, verður tortímt
21
og þeim sem sakfella menn fyrir rétti, þeim sem leggja snörur fyrir þann sem áminnir í hliðinu og vísa hinum saklausa frá með innantómu hjali.
22
Þess vegna segir Drottinn, sem endurleysti Abraham, við ættbálk Jakobs: Nú þarf Jakob ekki að blygðast sín lengur og andlit hans ekki framar að fölna
23
því að þegar þjóðin sér börn sín, verk handa minna, sín á meðal mun hún helga nafn mitt, helga Hinn heilaga Jakobs og óttast Guð Ísraels
24
og þeir sem eru villuráfandi í anda munu öðlast skilning og þeir sem mögla láta sér segjast.
← Chapter 28
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 30 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66