bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 5
Isaiah 5
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 6 →
1
Ég vil kveða um ástvin minn, ástarkvæði um víngarð hans. Ástvinur minn átti víngarð á frjósamri hæð.
2
Hann stakk upp garðinn, tíndi úr honum grjótið, gróðursetti gæðavínvið. Hann reisti turn í honum miðjum og hjó þar þró til víngerðar. Hann vonaði að garðurinn bæri vínber en hann bar muðlinga.
3
Dæmið nú, Jerúsalembúar og Júdamenn, milli mín og víngarðs míns.
4
Hvað varð meira að gert við víngarð minn en ég hafði gert við hann? Hví bar hann muðlinga þegar ég vonaði að hann bæri vínber?
5
En nú vil ég kunngjöra yður hvað ég ætla að gera við víngarð minn: Ég ríf niður limgerðið svo að hann verði nagaður í rót, brýt niður múrvegginn svo að hann verði troðinn niður.
6
Ég vil gera hann að auðn, hann skal ekki verða sniðlaður og ekki stunginn upp, þar skulu vaxa þistlar og þyrnar og skýjunum vil ég banna að vökva hann regni.
7
Því að víngarður Drottins er Ísraels hús og Júdamenn ekran sem hann ann. Hann vænti réttlætis en sá blóði úthellt, vænti réttvísi en neyðaróp kváðu við.
8
Vei þeim sem bæta húsi við hús, tengja akur við akur þar til engin spilda er eftir og þér búið einir í landinu.
9
Drottinn allsherjar sór í minni áheyrn: Mörg hús verða yfirgefin, stór og fögur hús mannlaus.
10
Því að tíu plóglönd í víngarði munu gefa af sér eitt bat og tunna útsæðis eina efu.
11
Vei þeim sem fara snemma á fætur til að sækja sér áfengan drykk og sitja langt fram á nótt eldrauðir af víni.
12
Þeir halda samdrykkju við undirleik gígju, hörpu, páku og flautu en gefa verkum Drottins engan gaum. Þeir sjá ekki handaverk hans.
13
Þess vegna verður þjóð mín hrakin í útlegð að hún skilur ekki, tignarmenn kveljast af hungri og múgurinn er þjakaður af þorsta.
14
Þess vegna þenur helja upp gap sitt, glennir upp ginið sem mest hún má svo að spjátrungarnir í Jerúsalem steypast þar niður og múgurinn með, hávaðamenn og svallarar.
15
Mannkynið skal beygt, maðurinn auðmýktur, augu drambsamra verða niðurlút.
16
Drottinn allsherjar verður upphafinn í dóminum, hinn heilagi Guð birtir heilagleika sinn með réttlæti sínu.
17
Lömb verða þar á beit eins og í haga og feitir sauðir í rústunum.
18
Vei þeim sem draga sekt sína með svikaböndum ranglætisins og syndina með aktygjum,
19
þeim sem segja: „Flýti hann sér, láti hann sem fyrst til sín taka svo að vér sjáum það. Komi nú fram ráðagerð Hins heilaga í Ísrael svo að vér verðum varir við.“
20
Vei þeim sem kalla hið illa gott og hið góða illt, sem gera myrkur að ljósi og ljós að myrkri, sem gera hið ramma sætt og hið sæta rammt.
21
Vei þeim sem eru vitrir í eigin augum og hyggnir að eigin áliti.
22
Vei þeim sem eru kappar við drykkju og afreksmenn við bruggun sterkra drykkja,
23
þeim sem sýkna hinn seka fyrir mútur en svipta saklausan rétti sínum.
24
Eins og eldstungur sleikja upp stráin og hey hverfur í loga mun rót þeirra fúna og sproti þeirra feykist sem ryk. Því að þeir hafa hafnað leiðsögn Drottins allsherjar og forsmáð orð Hins heilaga í Ísrael.
25
Þess vegna brann reiði Drottins gegn þjóð hans og hann rétti út hönd sína gegn henni og laust hana svo að fjöllin skulfu og líkin lágu eins og skarn á strætunum. Samt sefaðist reiði hans ekki, hönd hans er enn útrétt.
26
Hann mun hefja upp gunnfána fyrir þjóð í fjarlægð og flauta til hennar að koma frá ystu mörkum jarðar. Og þarna kemur hún, fljót og frá á fæti,
27
enginn er þar móður og enginn hnýtur, enginn blundar, enginn sefur, enginn lausgyrtur um lendar, enginn með slitinn skóþveng.
28
Örvar þeirra eru hvesstar, allir bogar spenntir, hófar hestanna tinnuharðir, vagnhjólin fellibyl líkust.
29
Heróp þeirra líkist ljónsöskri, öskri ungljóns sem urrar ógnandi og grípur bráð sína, kemur henni undan og enginn fær bjargað.
30
Á þeim degi kemur ógnandi öskur gegn þjóðinni eins og brimgnýr. Hann lítur til jarðar, þar er þrúgandi myrkur, birtu bregður undir þungum skýjum.
← Chapter 4
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 6 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66