bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 36
Isaiah 36
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 35
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 37 →
1
Svo bar við á fjórtánda stjórnarári Hiskía konungs að Sanheríb Assýríukonungur réðst gegn öllum víggirtum borgum í Júda og tók þær.
2
Assýríukonungur sendi því næst yfirskenkjara sinn með mikið herlið frá Lakís til Jerúsalem á fund Hiskía konungs. Hann nam staðar hjá vatnsleiðslunni úr efri tjörninni við veginn út á þvottavöllinn.
3
Eljakím Hilkíason hirðstjóri kom út til hans ásamt Sebna ríkisritara og Jóak Asafssyni kallara.
4
Yfirskenkjarinn sagði við þá: „Segið Hiskía: Svo segir stórkonungurinn, konungur Assýríu: Hvað er það sem þú styðst við?
5
Heldur þú að orðin ein dugi sem ráð og styrkur í hernaði? Á hvern treystirðu úr því að þú hefur gert uppreisn gegn mér?
6
Þú treystir sjálfsagt á þennan brotna reyrstaf, Egyptaland, sem stingst inn í hönd þess sem styður sig við hann og fer í gegnum hana. Þannig reynist faraó, konungur Egyptalands, hverjum þeim sem treystir á hann.
7
En ef þú segir við mig: Vér treystum Drottni, Guði vorum, þá spyr ég: Voru það ekki fórnarhæðir hans og ölturu sem Hiskía lagði af er hann sagði við íbúa Júda og Jerúsalem: Fyrir altarinu í Jerúsalem einu skuluð þér falla fram.
8
Nú skaltu veðja við húsbónda minn, Assýríukonung: Ég skal gefa þér tvö þúsund hesta ef þú getur sett á þá riddara.
9
Hvernig mun þér takast að reka á flótta nokkurn landstjóra húsbónda míns, jafnvel þann aumasta þeirra, úr því að þú treystir á Egyptaland um stríðsvagna og vagnstjóra?
10
Að síðustu: Heldur þú að ég hafi farið til þessa lands gegn vilja Drottins? Nei, það var Drottinn sjálfur sem sagði við mig: Farðu gegn þessu landi og leggðu það í eyði.“
11
Þá svöruðu Eljakím, Sebna og Jóak yfirskenkjaranum: „Talaðu arameísku við þjóna þína. Vér skiljum hana. En þú skalt ekki ávarpa oss á hebresku í áheyrn fólksins sem stendur á borgarmúrnum.“
12
Þá sagði yfirskenkjarinn: „Heldur þú að húsbóndi minn hafi aðeins sent mig til húsbónda þíns og til þín með þessi skilaboð? Eru þau ekki einmitt til fólksins sem situr þarna á borgarmúrnum og mun ásamt yður neyðast til að leggja sér sinn eigin saur til munns og drekka sitt eigið þvag?“
13
Því næst gekk yfirskenkjarinn fram og hrópaði hátt og snjallt á hebresku: „Heyrið orð stórkonungsins, konungs Assýríu:
14
Svo segir konungurinn: Látið Hiskía ekki blekkja yður því að hann er ekki fær um að bjarga yður.
15
Og látið Hiskía ekki koma yður til að treysta Drottni með því að segja: Drottinn mun áreiðanlega bjarga oss. Þessi borg skal ekki afhent Assýríukonungi.
16
Hlustið ekki á Hiskía því að konungur Assýríu segir: Semjið við mig og gangið mér á hönd. Þá mun sérhver yðar geta neytt af eigin vínviði og eigin fíkjutré og drukkið vatn úr eigin brunni
17
uns ég kem og flyt yður til lands sem líkist yðar eigin landi. Það er land sem er auðugt af korni og vínberjasafa, brauði og víngörðum.
18
Látið Hiskía ekki blekkja yður með því að segja: Drottinn mun bjarga oss. Hefur nokkur guð annarra þjóða bjargað landi sínu úr greipum Assýríukonungs?
19
Hvar eru guðir borganna Hamat og Arpad? Hvar eru guðir Sefarvaíms?
20
Hverjir af guðum þessara landa hafa bjargað landi sínu úr greipum mínum? Hvernig ætti Drottinn þá að geta bjargað Jerúsalem úr hendi minni?“
21
En fólkið þagði og svaraði honum ekki einu orði því að konungurinn hafði sagt: „Svarið honum ekki.“
22
Eljakím hirðstjóri gekk þá ásamt Sebna ríkisritara og Jóak Asafssyni kallara í sundurrifnum klæðum til Hiskía og þeir sögðu honum hvað yfirskenkjarinn hafði sagt.
← Chapter 35
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 37 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66