bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 3
Isaiah 3
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 4 →
1
Guð, Drottinn allsherjar, sviptir Jerúsalem og Júda hverri stoð og styttu, allri stoð matar og allri stoð vatns,
2
hetju og hermanni, dómara og spámanni, spásagnamanni og öldungi,
3
liðsforingja og hirðmanni, ráðgjafa, galdramanni og slóttugum seiðmanni.
4
Ég geri drengi að höfðingjum þeirra og kenjar munu stjórna þeim.
5
Átök verða, maður gegn manni, einn mun þrengja að öðrum, unglingar ráðast gegn öldungum, lítilsvirtir gegn háttvirtum.
6
Þá þrífur maður jafnvel í bróður sinn heima hjá föður sínum og segir: „Þú átt yfirhöfn, þú getur verið leiðtogi vor, þessi rúst verður þá undir þinni stjórn.“
7
En á þeim degi mun hann hrópa og svara: „Ég kann ekki að binda um sár og heima hjá mér er hvorki fæði né klæði, gerið mig ekki að leiðtoga þjóðarinnar.“
8
Jerúsalem riðaði, Júda féll því að orð þeirra og athafnir voru andstæð Drottni, uppreisn gegn dýrðaraugum hans.
9
Andlitssvipur þeirra vitnar gegn þeim, þeir bera synd sína á torg eins og gert var í Sódómu, þeir dylja hana ekki. Vei þeim! Þeir hafa sjálfir bakað sér ógæfu.
10
Heill hinum réttláta því að honum mun vegna vel og hann nýtur ávaxta verka sinna.
11
Vei hinum guðlausa því að honum vegnar illa, honum verður það endurgoldið sem hann gerði öðrum.
12
Þjóð mín. Smábörn þjaka hana og konur ríkja yfir henni. Þjóð mín. Leiðtogar þínir leiða þig afvega, gera veginn sem þú gengur að villigötum.
13
Drottinn er staðinn upp í dóminum, hefur tekið sér stöðu til að dæma þjóð sína.
14
Drottinn kemur til réttarhalds yfir öldungum og höfðingjum þjóðarinnar: „Það eruð þér sem hafið etið upp víngarðinn, þýfi frá fátækum er í húsum yðar.
15
Hvað fékk yður til að traðka á þjóð minni, merja sundur andlit snauðra?“ Þetta er orð Guðs, Drottins allsherjar.
16
Drottinn sagði: Sökum þess að dætur Síonar eru stærilátar, ganga hnakkakerrtar og gjóa daðursaugum, tipla á göngunni með glamrandi ökklahringi,
17
mun Drottinn gera hvirfil Síonardætra kláðugan og afhjúpa koll þeirra.
18
Á þeim degi mun Drottinn taka af þeim skartgripi þeirra: ökklahringi, smásólir og tungl,
19
eyrnahringi, armbönd og klúta,
20
ennisdjásn, ökklakeðjur og belti, ilmbauka og verndargripi,
21
fingurgull og nefhringi,
22
viðhafnarklæði og möttla, kjóla og undirkjóla,
23
spegla og kyrtla, vefjarhetti og slæður.
24
Koma mun ódaunn fyrir ilm, reipi fyrir belti, skalli fyrir lokka, hærusekkur í stað skrautklæða, niðurlæging í stað fegurðar.
25
Menn þínir munu falla fyrir sverði og hetjur þínar í orrustu.
26
Borgarhlið Síonar munu harma og kveina og hún sitja yfirgefin á jörðinni.
← Chapter 2
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 4 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66