bible
ra
🌐 Language
English
Español
Français
Deutsch
Português
Italiano
Nederlands
Русский
中文
日本語
한국어
العربية
Türkçe
Tiếng Việt
ไทย
Indonesia
All Languages
Home
/
Icelandic
/
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
/
Isaiah 30
Isaiah 30
Icelandic 2007 (Biblían (2007))
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 31 →
1
Vei hinum þrjósku börnum, segir Drottinn, sem leiða ráð til lykta sem ekki eru frá mér, ganga í bandalög sem ekki eru mér að skapi og hlaða með því synd á synd ofan.
2
Þau fara niður til Egyptalands án þess að ráðgast við mig til þess að leita hælis undir vernd faraós, leita skjóls í skugga Egyptalands.
3
En vernd faraós verður yður aðeins til skammar og skjólið í skugga Egyptalands til smánar.
4
Þó að höfðingjar séu í Sóan og sendiboðar komnir til Hanes
5
verða þeir allir til skammar vegna þeirrar þjóðar sem hvorki veitir hjálp né liðsemd, heldur einungis skömm og smán.
6
Boðskapur um dýrin í Suðurlandinu: Um land neyðar og þrenginga, þar sem ljónynjur og öskrandi ljón hafast við, eiturnöðrur og fljúgandi drekar, flytja þeir auðæfi sín á bökum asna og fjársjóði sína á kryppum úlfalda til þjóðar sem engum verður að liði.
7
Liðveisla Egyptalands er fánýt og gagnslaus. Því nefni ég það Rahab sem ekkert aðhefst.
8
Komdu nú, skráðu þetta á töflu og ritaðu það á bók svo að það verði vitnisburður á komandi tímum og um alla framtíð:
9
Þetta er þrjósk þjóð, lygin börn, börn sem ekki hlusta á leiðsögn Drottins.
10
Þau segja við sjáendurna: „Sjáið ekki sýnir,“ og við spámennina: „Sjáið ekki það sem satt er, segið oss eitthvað geðfellt, kunngjörið tálsýnir.
11
Víkið af veginum, beygið af brautinni, hættið að setja oss Hinn heilaga Ísraels fyrir sjónir.“
12
Þess vegna segir Hinn heilagi Ísraels svo: „Sökum þess að þér hafnið þessu orði en reiðið yður á ofbeldi og klæki og treystið á þá
13
mun sekt yðar verða yður sem sprunga í gnæfandi borgarmúr sem bungar út. Sprungan veldur falli, múrinn hrynur skyndilega og á augabragði.
14
Hann hrynur eins og leirker sem er mölbrotið, svo gersamlega mölbrotið að ekki finnst brot í mylsnunni sem taka mætti með eld af arni eða ausa með vatni úr brunni.“
15
Því að svo segir Drottinn Guð, Hinn heilagi Ísraels: „Fyrir afturhvarf og rósemi munuð þér frelsast, í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera.“ En þér vilduð þetta ekki
16
heldur sögðuð: „Nei, vér viljum þeysa fram á hestum.“ Þess vegna munuð þér flýja. „Vér viljum ríða fráum fákum,“ og þess vegna munu þeir fráir sem elta yður.
17
Eitt þúsund mun skjálfa vegna hótunar eins manns og fyrir hótunum fimm manna munuð þér flýja uns þeir sem eftir verða líkjast merkistöng á fjallstindi eða gunnfána á hól.
18
Því bíður Drottinn þess að sýna yður náð, þess vegna rís hann upp til að miskunna yður, því að Drottinn er Guð réttlætisins. Sælir eru þeir sem á hann vona.
19
Já, þú þjóð á Síon, sem býrð í Jerúsalem, þú skalt ekki gráta lengur. Hann verður þér náðugur. Þegar þú hrópar á hjálp mun hann bænheyra þig.
20
Drottinn mun gefa yður neyðarbrauð og þrengingavatn, þá verður lærifaðir þinn ekki framar hulinn þér, heldur munt þú sjá kennara þinn með eigin augum,
21
heyra orð að baki þér með eigin eyrum: „Þetta er vegurinn, farið hann, hvort sem þér farið til hægri eða vinstri.“
22
Þá muntu afhelga silfurslegin skurðgoð þín og gulli lögð guðalíkneski þín, þú munt fleygja þeim í burtu eins og óþverra og segja: „Burt héðan.“
23
Þá mun hann gefa því regn sem þú sáðir í akurinn og kornið, sem hann gefur af sér, verður kjarnmikið og gott. Á þeim degi mun fénaður þinn ganga í víðlendum grashaga
24
og uxarnir og asnarnir, sem akurinn erja, fá saltaða fóðurblöndu að eta sem dreift er með skóflu og kvísl.
25
Á hverju gnæfandi fjalli og hverri hárri hæð munu lækirnir streyma bakkafullir á hinum mikla mannfallsdegi þegar turnarnir hrynja.
26
Þá verður tunglsljósið eins og sólarljós og sólarljósið sjöfaldast, daginn sem Drottinn bindur um sár þjóðar sinnar og græðir benjarnar sem hann veitti henni.
27
Nafn Drottins kemur úr fjarlægð, þungbær reiði hans brennur. Heiftin freyðir um varir hans og tunga hans er sem eyðandi eldur.
28
Andgustur hans er sem ólgandi vatnsfall sem tekur manni í háls. Hann sáldar lýði í síu eyðingarinnar, beislar þjóðir og leiðir þær afvega.
29
Þér munuð syngja ljóð eins og þegar menn helga sig á aðfaranótt hátíðar og gleðjast af hjarta, eins og þeir sem ganga við flautuleik til fjalls Drottins, til bjargs Ísraels.
30
Þá lætur Drottinn hátignarraust sína hljóma og sýnir að hann slær niður armi sínum í brennandi reiði með eyðandi eldstungum, skýfalli, ofviðri og hagli.
31
Assúr mun skelfast raust Drottins þegar hann lýstur með kylfu sinni.
32
Hvert kylfuhögg verður refsing sem Drottinn lætur ríða á honum við bumbuslátt, gígjuhljóm og helgan dans er hann reiðir til höggs og herjar á hann.
33
Eldfórnargryfjan er fyrir löngu undirbúin, hún er ætluð konungi, hún er djúp og breið, í henni er mikill viður og eldur sem andgustur Drottins kveikir eins og brennisteinsflóð.
← Chapter 29
Jump to:
Chapter 1
Chapter 2
Chapter 3
Chapter 4
Chapter 5
Chapter 6
Chapter 7
Chapter 8
Chapter 9
Chapter 10
Chapter 11
Chapter 12
Chapter 13
Chapter 14
Chapter 15
Chapter 16
Chapter 17
Chapter 18
Chapter 19
Chapter 20
Chapter 21
Chapter 22
Chapter 23
Chapter 24
Chapter 25
Chapter 26
Chapter 27
Chapter 28
Chapter 29
Chapter 30
Chapter 31
Chapter 32
Chapter 33
Chapter 34
Chapter 35
Chapter 36
Chapter 37
Chapter 38
Chapter 39
Chapter 40
Chapter 41
Chapter 42
Chapter 43
Chapter 44
Chapter 45
Chapter 46
Chapter 47
Chapter 48
Chapter 49
Chapter 50
Chapter 51
Chapter 52
Chapter 53
Chapter 54
Chapter 55
Chapter 56
Chapter 57
Chapter 58
Chapter 59
Chapter 60
Chapter 61
Chapter 62
Chapter 63
Chapter 64
Chapter 65
Chapter 66
Chapter 31 →
All chapters:
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
11
12
13
14
15
16
17
18
19
20
21
22
23
24
25
26
27
28
29
30
31
32
33
34
35
36
37
38
39
40
41
42
43
44
45
46
47
48
49
50
51
52
53
54
55
56
57
58
59
60
61
62
63
64
65
66